Nýjar fréttir!
Jæja, er þá ekki kominn tími á fréttir af henni Gunnsu? (allavega finnst Berglindi minni það...)Það er sko margt og mikið að frétta úr Ameríkunni núna!
Um helgina fór ég og fékk að sjá hvernig ALVÖRU háskólanemar skemmta sér!!! Jon vinur okkar hérna í North Park var áður í skóla í Missouri, í bæ sem heitir Columbia. Hann var i fraternity sem heitir Sigma Pi og okkur var boðið þangað í partý!


Hérna sjáiði Sigma Pi merkið og svo mynd af Jon sem hangir uppi í húsinu.. allir meðlimir síðasta árs. hehe plebbi
Við fórum fjögur saman i road trip, þetta er 7 tima keyrsla en var bara gaman á leiðinni. Á föstudagskvöldinu fórum vid í fyrirpartý í fraternity húsinu og fórum svo niður í miðbæ og fórum á tvo bari. Þessi bær er algjörlega byggður utan um skólann, sem er með 35 þúsund nemendur! þannig að þið getið rétt ímyndað ykkur stemminguna í miðbænum! Svo á laugardeginum vöknuðu strákarnir klukkan tíu um morguninn, í þeim eina tilgangi að byrja að drekka aftur! Við sem ekki meikuðum það, tókum því bara rólega fram til 11, en þá var farið í fraternity húsið aftur, þar var grillveisla og gaman, því homecoming ruðnings leikurinn byrjaði klukkan 1. Það fóru náttúrulega næstum allir á leikinn en þar sem við vorum ekki ein af þeim 70 þúsund manns sem áttu miða (án gríns!), þá vorum við áfram í partýinu og hittum fullt af skemmtilegu fólki, spiluðum pool og fleira. Klukkan 4 um daginn voru næstum allir búnir á því og því var haldið heim þar sem allir lögðu sig fram að kvöldmat. Um áttleytið fórum við aftur.. gettu hvert... í fraternity húsið og þar var sko það villtasta partý sem ég hef séð! Gleymið öllu sem þið sjáið í bíómyndunum... þetta var VERRA!!;)

Þarna sjáiði kjallarann og hluta af fólkinu og svo glittir í barinn líka... hehehe... það var DJ og opinn bar með
ókeypis áfengi og Jello shots sem var ekki slæmt!!:

Við dönsuðum og spjölluðum við fólk og skemmtum okkur konunglega þangað til það var haldið heim um 3 leytið um nóttina. Þetta var búinn ad vera langur dagur! Mig og Vicky langaði helst ekkert að fara heim aftur.. hehe..

Erum við ekki sætar?!;)
En svo í gærkvöldi, þá vorum við Vicky svo heppnar að fá ókeypis miða í óperuna í Chicago! Hanna, konan sem ég er að passa fyrir átti miða en þau hjónin komust ekki, þannig að þau gáfu þá til góðgerðarmála... til fátækra háskólanema:) Ég var að passa fyrir hana í gær, frá hádegi og við Emil Örn fórum í 3 og 1/2 tíma göngutúr um miðborg Chicago (og búðir.. hehe) og svo komum við heim, Vicky kom og hitti okkur og við öll, ég, Vicky, Hanna og Emil Örn fórum út að borða á geggjaðan kínverskan stað. Hanna bauð okkur út að borða.. við geðveikt heppnar, ókeypis næt át onn ðe táwn...:) ekki slæmt það! Óperan sem við sáum heitir Iphigénie en Tauride eftir Christoph Willibald Gluck og meira get ég nú ekki sagt ykkur.. þetta er forngrísk saga um systkini, morð, guði, sjálfsmorð, konunga og margt fleira agalega dramatískt... hehe.. en þetta var þvílík upplifun að fá að prófa þetta.. ég meina, ég held við hefðum aldrei splæst í miða sjálfar....

Svo er það næst á dagskrá að skella sér til NEW YORK! Ójá, þið heyrðuð rétt! Stefnan er tekin á Borg borganna, nýju jórvík helgina 2.-6. nóvember! Ég ætla að gista hjá henni Jóhönnu, frænku Liljunnar minnar og Dino vinur minn ætlar að koma með mér til að halda mér félagsskap þegar Jóhanna er að vinna. Við ætlum að skoða borgina og hafa það gaman!;) Jeij, ég get ekki beðið!! Vill einhver koma með og hitta okkur? Hvað kosta helgarferðir frá Íslandi?! Hvernig væri að skella sér?;)

En jæja, ég verð að drífa mig í hádegismat, læt þetta fréttauppdeit duga í bili! Elska ykkur öll! Knús og kossar,
Gunnsa
24. október 2006 klukkan 22:41
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir