LOKSINS!!!:)
jæja, þá held ég að það sé kominn tími á að blogga smá um ferðina miklu til New York.. finnst ykkur það ekki?
Við lögðum af stað á fimmtudegi og komum heim a mánudegi. Það gefur okkur semsagt fjóra daga í borginni. Á þessum fjórum dögum gerðum við sko alveg heilmargt!
Við:
Sáum skautasvellið við Rockafeller Center

ufff. jaeja.. kem ekki meiru ad i bili.. verd ad haetta ad passa og fara heim.. klara thessa faerslu bradum
2 timum seinna:
ARGHHHHH ég var búin að klára þessa færslu alveg... en svo DATT HUN UT!! ég er brjáluð!!
Var buin að setja inn billjón myndir og skrifa alla ferðasöguna.. veit ekki ALVEG hvað gerðist.. en ég hef ENGAN VEGINN þolinmæði í að skrifa hana aftur núna.. þannig að ég skrifa meira á morgun.. ég LOFA!
Sorry.. en þið þekkið mig... stundum er þolinmæðin bara af skornum skammti.. ég er farin á barinn með krökkunum;) bleeeeeeeeeeeeeeesssssssssssssssssssss.... over and out...
Okei..
Degi seinna...
Núna er ég loksins búin að byggja upp þolinmæði til að byrja þessa færslu upp á nýtt. Plús það að það er brjálaður stormur úti með þrumum og eldingum sem eru háværari en nokkuð sem ég hef áður heyrt, þannig að maður bara hangir inni og gerir ekki neitt.
Hvað gerðum við fleira í New York?
Við......
Fórum í Central Park Zoo þar sem voru allskyns dýr af öllum stærðum og gerðum. Það sem okkur fannst samt skemmtilegast voru sæljónin því þau gerðu allskonar trikk.. hehehe

Fórum í Trump Tower, þar sem allt er úr bleikum marmara og gulli og maður getur farið á Trump Grill, fengið sér Trump ice cream, Trump súkkulaði og keypt allskyns Trump-memorabilia. Myndir af honum hanga upp úti um allt. Það sem mér fannst fyndnast var að maður gat keypt handklæði merkt með gullnu setningunni: "You´re fired!":)

Fórum á Metropolitan listasafnið. Þar sáum við gríska list, býsantíska list, egypska og asíska list. Við sáum hluta úr egypsku grafhýsi, grískar styttur, ljósmyndasýningu, kirkjulist, og já, eiginlega bara allt sem tengist list...

Gengum 5th Avenue fram og til baka og sáum allar flottu búðirnar, Prada, Escada, Salvatore Ferragamo, Kenneth Cole, Louis Vuitton, Coach, Armani að ógleymdu sjálfu Saks 5th Avenue!!:)

Fórum á Ground Zero til að minnast þeirra sem dóu 11. september 2001. Þar var nú samt ekki mikið að sjá, enda framkvæmdir á svæðinu og girðing í kring. Á girðinguna var sett upp ljósmyndasýning með myndum tengdum 9/11. Ég í raun bjóst við því að koma þangað yrði meira "overwhelming" en held ég hafi bara ekki alveg náð þessu. Það sem stakk mest í hjartað var að einhver hafði fest blómvönd á girðinguna með korti sem á stóð "gone but not forgotten".....

Fórum á Times Square og gengum um. Þar iðar allt af lífi, ljósum, litum og látum. Ef einhverntímann þarf að skilgreina "sensory overload", þá þarf ekki annað en að fara þangað! Meira að segja McDonalds var með eitt brjálaðasta ljósaskilti sem ég hef séð og dúndrandi tónlist. Allt troðið af fólki og ekki laust við að maður hafi fengið vott af innilokunarkennd.

Heimsóttum Grand Central Station lestarstöðina. Þar hafa atriði í ófáum bíómyndum verið tekin upp, en samt var það fyrsta sem kom upp í hugann á mér þegar ég sá þetta, var þáttur í CSI: New York sem gerðist þarna... muniði þegar kallinn var að hlaupa með sýru í glasi og datt í tröppunum og sýran helltist yfir hann og hann dó en litla stelpan missti bangsann sinn og það fór sýra á hann og bangsinn varð eitt aðal sönnunargagnið... haha.. nei þið munið ábyggilega ekki neitt... það er bara ég sem er skrítin, ég veit... haha...

Fórum í Chinatown, þar sem allt iðar af, ja, kínafólki.... haha.. Þar var sko shopping paradise skal ég segja ykkur!! Hahaha... Þar sem það er ólöglegt að selja falsaðar merkjavörur þá er liðið með útsendara á aðalgötunni sem ganga um og hvísla að manni "purse purse handbag, coach, louis vuitton, special price for you, follow me".. haha.. Ég og Vivian, stelpan sem ég var með, við stóðumst ekki freistinguna og eltum einn slíkan tvær götur í burtu, upp á aðra hæð í húsi, inn á skrifstofu, inn um leynihurð á skrifstofunni og viti menn, þá komum við inn í stóran sýningarsal fullan af feik Coach, Prada, Vuitton, Kate Spade, Chloé og fleiri eðalmerkjum.. haha.. Ég keypti mér yndislega fallega Coach tösku, mjög gott feik, sem venjulega mydni kosta amk 40.000 kjell, á 3000 kr.. Ég tel það bara nokkuð vel sloppið.. hehe. En við skulum bara orða það þannig að ég kom heim frá Chinatown með NOKKRA poka...;)

Við gistum hjá Jóhönnu, frænku Liljunnar minnar. Hún býr uptown á Manhattan svo það var mjög auðvelt að komast út um allt. Við keyptum bara unlimited lestarkort og gátum farið hvert á land sem var.. innan manhattan að sjálfsögðu.. hehe... Við hittum líka Jamal, kærastann hennar Jóhönnu og Peanut, hundinn hennar, sem ég held að sé með þeim sætari sem ég hef séð.


Við fórum svo heim á mánudegi, dauðþreytt eftir helgina en það var sko alveg GEGGJAÐ gaman!
Gamanið var nú samt ekki búið þó maður væri kominn heim, því að á þriðjudaginn fór ég út með Kelly vinkonu minni og Danny kærastanum hennar, á bar sem seldi bjór fyrir 25cent eða sirka 17 krónur.. ekki slæmt það!;)
Þau voru allavegana hress...:)Svo á miðvikudagskvöldið fór ég á tónleika með Joanna Newsom sem voru alveg hreint GEGGJAÐIR. Hún spilaði nokkur gömul lög, þar á meðal The book of right-on sem er mitt uppáhalds, en svo ákvað hún að fá hljómsveitina sína með upp á svið og spila nýja diskinn sinn frá upphafi til enda. Þar sem ég hef ekki ennþá heyrt nýja diskinn þá var ég pínu vonsvikin, því yfirleitt vill maður heyra lög sem maður þekkir. En ég tek það til baka. Nýja diskinn verð ég að eignast því hann er alveg hreint MAGNAÐUR!!;) Mikil gleði og ánægja með þessa tónleika.
Ég ætla að setja inn tvær myndir frá þeim, eina af Joönnu sjálfri og eina mynd sem ég tók ofan af svölunum þegar allt fólkið var að fara út. Það var alveg hellingsslatti af fólki á tónleikunum og svo var hún að fara að spila á öðrum tónleikum strax á eftir þessum.


Já, þannig að vikan mín er búin að vera mjög skemmtileg. Veit ekki hvað helgin mun bera með sér en ég er bara mjög spennt að sjá:) hehe...
Af skólanum er allt gott að frétta, ég fékk 100% á stærðfræðiprófi í lyfjaútreikningum sem ég vissi ekki einu sinni að ég ætti að taka og 92% á prófi í hand-og lyflækningahjúkrun. Bara nokkuð sátt með þetta. Svo er búið að "uppfæra" mig yfir á gjörgæsluna í verknáminu þar sem ég vinn ein með hjúkkunum þar og fæ sko að gera alveg FULLT! Þetta er ALLT annað! Mér líkar þetta alveg rosalega vel.
Þannig að.. Gunnsan er bara nokkuð sátt við lífið og tilveruna núna...
Hafið það gott um helgina, elskiði friðinn og strjúkið kviðinn.
Knús í klessu frá Chicago
10. nóvember 2006 klukkan 06:21
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir