Afmćlisgleđi og hamingja!!!
Á föstudaginn síðastliðinn varð ykkar ástæra Gunnhildur 23 ára gömul hvorki meira né minna! Til að halda upp á daginn leyfði minn yndislegi vinur Dino mér að halda partý í íbúðinni sinni. Þemað var ákveðið að yrði Hawaii. Í stíl við það voru skreytingar og outfitt partýhaldara. Hátt í þrjátíu manns létu sjá sig í tilefni dagsins.Bollan var litrík og bragðgóð og gestirnir glaðir. Afmælisbarnið skemmti sér alveg ótrúlega vel og vildi að allir vinir sínir heima hefðu getað komið líka! Þeir hefðu heldur betur skemmt sér konunglega!! Alohaaaaaa!
Látum myndirnar tala sínu máli.











Eftir partýgleðina héldu næstum allir gestirnir niður í miðbæ Chicago, á bar sem heitir því frumlega nafni Bar Chicago. Einhver ótrúleg lukka varð til þess ad allir sættust á að fara á sama staðinn, sem er nú mjög sjaldgæft þegar hópur sem inniheldur meira en 15 manns frá mismunandi löndum og með mismunandi smekk ákveður að bregða undir sig betri fætinum. En allt heppnaðist stórkostlega, við dönsuðum af okkur óæðri endana í takt viðdúndrandi skemmtilega tónlist sem allir virtust vera að fíla. Eftir gleðina keyrði Nancy - sjá myndina hér fyrir neðan til vinstri - mig heim og allir voru alveg ótrúlega sáttir með daginn/kvöldið/nóttina.


Á laugardeginum fór undirrituð ásamt Nancy út að borða hádegismat á kaffihúsið Su Van´s, þar sem Kelly og Kurt vinir okkar vinna. Þar voru snæddar dýrindis samlokur og kaffi og eftir að aðalrétturinn var búinn kom litla snúllan hann Kurt - sem er pastry chef - með þessa gleði á borðið:

Þetta gladdi hjartað (og magann) þrátt fyrir að vera degi of seint á ferðinni. It´s the thought that counts, right? Þið sem þekkið mig vitið að ég gæti ekki orðið óánægð með súkkulaði-hnetusmjörsköku.... ekki satt? nammmm
Ég vil bara þakka ykkur öllum sem senduð mér afmæliskveðjur og hugsuðuð til mín á föstudaginn og fyrirgef ykkur hinum sem gleymduð deginum.. hehehe.... (það voru nú ekki margir). Takk fyrir pakka og kort og spes þakkir til systur minnar ef hún er að lesa þetta fyrir að gefa mér fallegasta hálsmen allra tíma! Ég tók það ekki niður alla helgina! Búin að fá þvílíkt mörg hrós fyrir hvað ég á flott hálsmen:)
Knús til ykkar allra! Vildi að þið hefðuð getað verið með mér í því að halda upp á daginn.. en ég lofa að halda alveg jafn skemmtilegt partý að ári liðnu! (jafnvel fyrr!!)
20. nóvember 2006 klukkan 10:10
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
Vildi svooo að ég hefði getað verið með þér þarna, þetta var greinilega ekkert smá mikið stuð hjá ykkur!!!
Takk líka fyrir tjattið snúlla...alltaf gott að heyra í þér!! :)
hilsner pilsner