thanksgiving geðveiki

Jæja, þá er maður kominn heim aftur eftir æðislega thanksgiving helgi af afslöppun og góðum mat!
Ég býst við því að fólk vilji fá ferðasögu, right?
Á miðvikudaginn lögðum við af stað, ég, Dino og Vicky frá Argentínu. Við komum við í alveg geggjuðu molli og did some shopping, ofcourse!! hehe.. keypti ymislegt fyrir fólk sem var búið að leggja inn pantanir.. sendi dótið í vikunni. Keypti að sjálfsögðu eitthvad fyrir mig líka. Svo fórum við heim til foreldra Dino en þau búa í úthverfi Chicago sem heitir Indian Head Park. Við tókum því bara rólega til að byrja með og komum okkur fyrir en svo kíktum við aðeins út í Naperville. Fórum á Martini-bar þar sem ég fékk mér tvo alveg geggjaða martini, einn mojito-martini offkorrrs og svo mintu-súkkulaði-martini sem var alveg geggjaður

Svo á fimmtudeginum vorum ég og Vicky heima með mömmu hans Dino og hjálpuðum henni í eldhúsinu á meðan Dino fór og hjálpaði restinni af fjölskyldunni sinni að þrífa veitingastaðinn þeirra, en hann er opinn 24 tíma á sólarhring og er alltaf tekinn rækilega í gegn á thanksgiving sem er eiginlega eini dagurinn fyrir utan jólin sem staðurinn er lokaður! Kominn tími til.. hehehe... En svo um kvöldið fylltist allt af grísku fjölskyldunni hans, sem voru mörg og hávær! hehe.. þetta var næstum eins og í my big fat greek wedding.. án gríns! tíhíhí! Við fengum klassískan thanksgiving mat, kalkúna, stuffing, sósu og sætar kartöflur, ásamt allskonar geggjuðum grískum mat, fetaost, fyllt vínberjalauf, spínatböku, filo-bökur með osti og spínati og allskonar annað gúmmulaði. Með þessu drukkum við punch. jömmí! Fyrir þessi hátt í 30 manns í boðinu þá þurfti hvorki meira né minna en 24 punda kalkún sem er hátt í 12 kílóa flykki! Svo hittist það einmitt þannig á að litla frænka Dino, dóttir systur hans, átti 2 ára afmæli sama dag og thanksgiving, þannig að það var afmælisveisla í leiðinni og risakaka og allt tilbehör.
     

       
 
                                  
Á þessum myndum getið þið séð kalkúnann, pönsið, Dino, Vicky og bróður Dino, mömmu hans og pabba og svo að lokum systur hans ásamt litlu snúllunni henni Sophiu sem varð tveggja ára gömul og fékk Elmo köku:)

Á fimmtudagskvöldið héldum við heim aftur til þess eins að fara að sofa og vakna óguðlega snemma á föstudagsmorguninn því að stærsta útsala ársins í usa er alltaf daginn eftir thanksgiving og búðirnar opna flestar klukkan sex um morguninn og við Vicky drifum okkur út til að ná öllum bestu dílunum! Það gekk upp og við gátum verslað af okkur rassgötin án þess að vera fastar í þvögu. Við þökkuðum fyrir það þegar við fórum heim um ellefu, því þá voru ALLIR og þá meina ég ALLIR að koma niðrí bæ og búðirnar troð troð troð fullar og kílómetra raðir að kössunum. Ótrúlega margar búðir voru líka með til dæmis 25% auka afslátt af öllu í búðunum fyrir klukkan tíu.. eða allskonar gefins dót með hverjum kaupum, á meðan birgðir entust.. og auðvitað græddum við fullt á því! Gaman gaman.

Svo klukkan tvö mætti ég á Greyhound rútustöðina til að taka rútu til Decatur, illinois, en þar búa mamma og pabbi Jóhönnu, skáfrænku hennar Lilju minnar. Jóhanna tók á móti mér og fór með mig beint til vinafólks þeirra sem var með síðbúna thanksgiving veislu svo ég græddi aftur kalkúna en í þetta skiptið var meðlætið með indversku sniði, enda fjölskyldan indversk sem við snæddum hjá. Þvílík snilldar eldamennska! MMMMmmmm.. ég át á mig gat!
En ég var orðin ansi þreytt eftir duglegheit dagsins og því var rosalega gott að leggjast í stórt og þægilegt rúm og sofa í tólf tíma eftir þetta allt saman. Södd og sæl

Á laugardeginum fórum ég, Jóhanna og mamma hennar í labbitúr í nágrenni hússins þeirra. Þau búa á alveg yndislega fallegum stað, við vatn og húsið og útsýnið æðislegt! Sjáiði bara:

    

Um kvöldið var svo matarboð með egypsku vinafólki þeirra. Þvílíkt alþjóðleg helgi hjá mér! Pabbi Jóhönnu og bróðir sáu um eldamennskuna og við fengum alveg æðislegan indverskan mat aftur! Nammm.. ég er hooked!:)
Við unga fólkið kíktum svo aðeins út á skemmtistað í Decatur og skemmtum okkur konunglega.

      
Michael, bróðir Jóhönnu og Kristina, kærastan hans. Ég og Jóhanna

      
Jóhanna og pabbi hennar.                                       Jóhanna og mamma hennar.

Í sunnudagshádeginu fórum við svo í enn eitt indverska matarboðið hjá nágrannafólki þeirra. Fengum aftur alveg æðislegan mat. Eftir matinn fengu allir sér lúr.. það tekur á að borða svona mikið og gera ekki neitt!!;) hehe
Svo tók ég rútuna heim til Chicago í gærkvöldi og var komin heim um eittleytið eftir miðnætti.
Fór beint í háttinn og fór svo í tíma í hjúkrun fullorðinna í morgun. Sit núna á kaffihúsinu mínu og er að reyna að koma þessu öllu niður á blað... (tölvu..)

Þessi langa helgi var alveg hreint fullkomin í alla staði og sannaði fyrir mér að það er nauðsynlegt að komast í burtu við og við og vera með fjölskyldu.. á heimili.. það þarf ekki að vera manns eigin fjölskylda eða eigið heimili, heldur er bara rosalegur munur að vera í þessu fjölskyldu-umhverfi, þegar maður býr á heimavist þar sem maður deilir herbergi, klósetti, mötuneyti, sjónvarpsherbergi og öllu öðru með milljón manns... þvílíkur lúxus að fá að sofa einn í herbergi í stóru rúmi, fara í bað einn og yfirgefinn, eiga alvöru samræður við fólk og vera í hópi góðs fólks.
Yndislegt alveg hreint

Ég kem því alveg endurnærð til baka og tilbúin til að takast á við næstu tvær vikur í skólanum sem eru þær síðustu fyrir jólafrí! Ótrúlegt en satt! Mikið rosalega flýgur tíminn hratt! Ég hlakka til að fara til Seattle og hitta fjölskylduna þar og eiga yndislegan mánuð og ég veit að maturinn þar verður alls ekki síðri en sá sem ég fékk um helgina! Mmmm... hangikjöt!!!:)

Elska ykkur öll og sakna og vona að þið hafið átt góða helgi eins og ég!
28. nóvember 2006 klukkan 02:51
Gunnhildur Árnadóttir
Eva Dögg Rúnarsdóttir skrifar ...
vá!!! hvað þetta hljómar EKKI vel.... heldur FULLKOMIÐ!!!!!!!! Gunnsa hvernig geturru komið aftur til íslands?? ég bara spyr?? þú átt eftir að deyja úr leiðindum, svona miðað við hvað þú hefur það gott úti!!!!
það sem að ég öfunda þig mest af mún vera:
VERSLUNARDAGURINN!!!!! númer eitt, tvö og þrjú!!!
martini-barinn
maturinn
allt yndislega fólkið!!
...æi bara allt er æði!!!!
það er svoooo gott hvað þú hefur það yndislega gott!
.....spörning að fara að senda þér svona shoppinglista ha...*??
love you!!!!!!!
28. nóvember 2006 klukkan 03:25
Matta skrifar ...
Jiii ég nánast slefa af öfund... yfir öllu saman
28. nóvember 2006 klukkan 05:08
hildur lind skrifar ...
æjjjj vá!!! hvað það er gaman hjá þér!!! ;D
miss u the most snúllan mín og haltu áfram að hafa það svona endalaust gott!! :)
*knús* frá dk
28. nóvember 2006 klukkan 14:30
Vala Húnbó skrifar ...
Úff þvílík lesning! oh æðislegt! veistu ég var að fá frábærar fréttir!! Hjúkrunarfræðin er 4 ár og það þýðir að þú verður hér í eitt ár í viðbót:D:D:D:D
29. nóvember 2006 klukkan 03:24
Ólöf skrifar ...
nirrrrrrrrrrrrlll..... ;)
Væri ég nú til í að verla af mér bossan...úff
en það er nú gott lillan mín að það var aman hjá þér þarna úti ..
ensk jú
Ó
29. nóvember 2006 klukkan 06:12
Sunna skrifar ...
hæhæ sæta sakna þín! vantar hitting hjá leikfimislúðunum úr kvennó ;)

ekkert smá spennandi helgi hjá þér! alþjóðleg og spennandi, ég samgleðst ekkert smá með þér og spennandi lífi þínu um þessar mundir! skil þig vel ef þú kemur barasta ekkert heim hahahahaha

knús frá klakanum(það snjóaði rigndi og fraus þannig það er virkilega KLAKI hérna!)
29. nóvember 2006 klukkan 18:04
Ditta skrifar ...
Skemmtileg og alþjóðleg thanksgiving hjá þér elskan mín!!
... varð annars bara hugsað til þín af því ég sit í þingvallastræti á fyrsta degi próftarnageðveikinnar og sakna þín svo mikið!!
Ég óska þér góðs gengis í prófunum krúsílínafína mín

p.s. Ingólfur bað mig að koma til þín skilaboðum um að 3 af 6 efstu kaffibarþjónum heims væru frá kafficompany-i í chigago sem hét intellegence- eitthvað... tékkaðu á þessu og láttu mig vita!!

bless í bili sæta spæta
30. nóvember 2006 klukkan 04:21

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...