allt á fullu

ojæja

þá styttist í allt jólastandið.. bara 4 dagar þangað til ég fer til Seattle, ótrúlegt alveg hreint!
Búin að senda flestöll jólakortin, en ekki öll, og alla jólapakkana. Vona að þetta komist allt til skila á réttum tíma, en ekki örvænta ef þið fáið kort aðeins of seint.. ehemm...

Nokkrir af skiptinemunum koma ekki aftur eftir jól, þannig að það er ekki laust við smá sorglegheit hérna í hópnum...
Fórum öll saman, 13 stykki heim til Jons í gær og höfðum það gott, mamma hans bjó til rosa góðan mat fyrir okkur og við horfðum svo á pirates of the caribbean 2 í sjónvarpsherberginu þeirra sem er líkara því að vera bíósalur, með tveimur sófum á upphækkuðum pöllum, breiðtjaldi og surround kerfi. Alveg hreint glæst. Svo sátum við bara í kringum barinn sem er í kjallaranum þeirra (án gríns), blönduðum drykki og spiluðum beer pong og pool (á poolborðinu sem er líka í kjallaranum.... nice alveg hreint). Svo fóru allir í heitapottinn þeirra og svo bara að sofa. Við gistum öll heima hjá þeim. Þetta var ótrúlega kærkomin hvíld frá heimavistinni og gaman að ná að vera saman bara við hópurinn áður en jólafríið kemur.

Komum heim í dag og erum bara búin að hafa það rólegt. Fór út að borða með Dino áðan og borðaði alveg geggjað gott sushi á nýjum sushistað sem við höfðum aldrei prófað. Ég er orðin alveg hooked.

Er að passa á morgun og held ég fari bara að pota mér í rúmið. Smelli kannski nokkrum myndum frá helginni inn ef ég nenni á morgun.

Ætlaði að henda inn einni mynd af jólasvein hérna og googlaði orðið jólasveinn og held ég barasta VERÐI að skella inn einni af myndunum sem kom upp:

hóhóhó!!

Over and out
Gunnsan
11. desember 2006 klukkan 11:09
Gunnhildur Árnadóttir
hildur lind skrifar ...
hihihihi flottur jólasveinn... ;D
en úfff skil þig vel...einmitt fjórir dagar þangað til maður kemst í jólafrí og fer heim á klakann!!!
hafðu það nú sem allra best sætasta mín!!
*kys&knus* frá dk
11. desember 2006 klukkan 14:00
Eva Dögg Rúnarsdóttir skrifar ...
hehehehehee geggjaður jólasveinn!!!! mikið rosa ertu að standa tig í jóladótinu.... hér er svo roooooosalegt stress að ég reikna með að kaupa alla pakkana á 3 klst tops!! þann 22 des.... það er rooooooooosa að gera!!!! en látta mig endilega vita með dagsetningarnar sem fyrst!!! hljómar sem pörfikt sleepover hjá ykkur... væri alveg til í eitt stykki svona kjallara!!!!!! hlakka til að borða sushi með þér rétt eftir páska!!!! love you
12. desember 2006 klukkan 05:08
Grétar skrifar ...
4 dagar segiru??

Ég er enn í prófum og Erna kemur 22.des. Hittumst vonandi e-n tímann eftir aðfangadag. Finnum eitthvað skemmtilegt að gera í borg bleytunnar.

Grétar
12. desember 2006 klukkan 07:10
Sunna Kvennógella ;) skrifar ...
ég er að klépra á íslandi þessa dagana, vertu fegin að vera ekki hér! Gott að þú ert að skemmta þér snúllan mín og hafðu það sem allra best um jólin, lesumst! ;) :D
12. desember 2006 klukkan 21:39

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...