:(

Ég sat hérna í mestu makindum og var að horfa með Gerði frænku á DVD með Björgvini Halldórssyni af tónleikum með sinfóníunni.
Allt í einu fékk ég sting í hjartað.
Ég heyrði aftur lag sem ég hef ekki heyrt frá því á miðnætti 1. maí síðastliðins.
Þetta merkir kannski ekki neitt fyrir neitt nema mig, Heiðu og Hlyn, en við sátum öll í bílnum mínum og grétum úr okkur augun yfir þessu lagi, sem átti ábyggilega hvergi betur við heldur en akkúrat þetta kvöld, daginn sem Liljan okkar dó.

Hún var hjá mér hér í gær
gekk um þessi gólf
hún var glæsileg og geislaði í gylltum sumarkjól
Það var sól
himininn heiður svo tær
og allt í lyndi lék

Nú er orðið hér svo hljótt
allt með öðrum blæ
og nú heyrist hennar hlátur ekki lengur hér á bæ
Það er kvöld
senn kemur nóttin svo köld
og engin mér við hlið
hvað tekur við?

Ég má ekki hugsa til þess
að ég sjái hana ekki á morgun
fái jafnvel framar ei snert
Það er ómögulegt
ekkert líf

Viltu fyrirgefa mér
það segist eins og er
ég særður er án þín
Undir minni hrjúfu skel
er sál sem engin ver
og heyrðu orðin mín

Ég gæfi hvað sem er
fyrir að hafa hér allt
eins og það var í gær

Það var ýmislegt sem fór ekki eins og best
verður kosið á þó virkilega fenni yfir flest
miður gott
Við eigum mun fleiri þó
ljúfar minningar
góðu stundirnar

Ég má ekki hugsa til þess
að þær verði ekki fleiri
ég er bara eins og við flest
breyskur, þrjóskur og þver
því er verr

Fyrirgefðu mér
það segist eins og er
ég særður er án þín
Ég sé ei sólina fyrir þér
og þrái ekkert hér
heitar en að fá þig heim
og horfa í augu þín sem fyrr
ég horfi í augu þín á ný

Og þig ég bið
viltu fyrirgefa mér
það segist eins og er
allt vonlaust er án þín

Já viti menn,
undir minni hrjúfu skel
er sál sem vill svo vel
heyrðu orðin mín

Ég gæfi hvað sem er
fyrir að hafa hér allt
eins og það var í gær

Viltu reyna ad fyrirgefa mér

(Texti: Stefán Hilmarsson)


Elsku Lilja mín! Ég sakna þín og elska og veit að þú ert alltaf hjá okkur!
En þarna, 1. maí, hefði ég sko líka gefið allt til að hafa hlutina eins og þeir voru..
... í gær...

26. desember 2006 klukkan 06:18
Gunnhildur Árnadóttir
Heiđa Rún skrifar ...
Jesús Gunnhildur ég man þetta eins og þetta hafiu gerst í gær, hvílík stund þegar við heyrðum þetta lag!! Ég hugsa að það hefði ekki getað átt betur við.
,,Hún var glæsileg og geislaði í gylltum sumarkjól" Ef að þetta eru ekki orð sem að lýsa henni Lilju okkar sem best þá eru þau ekki til.
Ég elska þig og sakna ástin og vill fara að fá þig heim ;)
P.S. takk fyrir að vera búin að finna lagið, mig er búið að langa til að heyra það síðan við heyrðum það fyrst!
27. desember 2006 klukkan 02:00

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...