Jolamyndir..
Jæja, er ekki kominn tími á smá jólasyrpu af myndum? Ég komst loksins á kaffihús með neti með fartölvuna mína svo ég gat hlaðið upp myndum og sett þær á netið og svona. Ótrúlega skrítið hvað lífið er að ganga sinn vanagang hérna þrátt fyrir að það sé annar í jólum. Það virðist vera mikið minni heilagleiki yfir öllum jólunum hérna heldur en heima. Engar kirkjuklukkur klukkan sex og engin skylda að vera í sínu fínasta pússi. Það sátu allir inni í eldhúsi og horfðu á ruðningsleik á aðfangadag!! Inni í eldhúsi! Þar sem Gerður frænka var á fullu að sjóða hangikjöt og gera uppstúf. Svo heyrði maður við og við öskrað "TOUCHDOWWWWWNNNNN!!!" og hrökk alveg í kút. Þetta fannst mér ekki alveg henta á jólunum! Einn frændi minn mætti í matinn í gallabuxum, og þá hélt ég nú að það ætlaði að líða yfir hana frænku mína.. hahaha... Eins og ég segi, ekki alveg jafn heilagt hérna.
En jæja, nóg um það, þetta er allt búið og gert..
Hérna koma myndirnar:

Mt. Rainier í öllu sínu veldi JólapakkaGEÐVEIKIN!!

Skylar Kay sætasta fræka!! Ég í jólafötunum með sætasta jólasveininn!!

Ég og Elsa Rose frænka Ég og Clair Ásta gelgjufrænka:)

Hangikjot og uppstúfur.. nammmm Gerður frænka og Jónas

Jónas frændi og Tabitha, og börnin, Levi Gunnar, Gunnar frændi og Karen og börnin, Clair Ásta
Aksel Þór og Skylar Kay og Elsa Rose

Þarna er svo öll familían saman komin. Vantar bara Friðrik frænda, Lísu konuna hans og börnin Marissu Elsu og Briönnu Marí. Friðrik vinnur við að vernda forsetann í Camp David, voða merkilegur kall þannig að hann fékk ekki frí í vinnunni greyið. Vonandi ég nái samt eitthvað að hitta hann áður en ég fer heim frá USA. Hver veit nema maður skelli sér til Washington DC á næstu önn, einn af skiptinemunum okkar fékk internship hjá norska sendiráðinu í DC og gæti bara verið að við heimsækjum hann og ég slái þá tvær flugur í einu höggi! Hver veit nema maður fái þá að skoða hvíta húsið:)
En jæja, þá lýkur þessarri myndasyrpu af amerísku jólunum mínum!
Ég kveð ykkur af kaffihúsi á öðrum í jólum, með eitt besta kaffi og biscotti sem ég hef fengið síðan ég kom til USA.
Ekki slæmt það.
Elska ykkur öll og sakna!
Knús og kossar
Gunnsan
Gunnhildur Árnadóttir
SA og R og krakkarnir. Jónbjörg og Abbi og Kjartan
og Haukur og Dúlla. Borðuðum hangikjöt, hamborgar-hrygg og purusteik með öllu meðlæti og Toblerone ís í eftirmat. Allir mjög saddir og kátir.
Söknuðum þín mjööööög. Það vantaði mikið. Dr.Hu og fjölskylda kom í kaffi í gærdag Litli Hu 16 og Margrét (kölluð Magga)2 eru orðin bráðmyndarleg og fallegt fólk. Pabbi biður að heilsa.
Mamma