Seattle!

Á midvikudaginn fórum ég og Gerður með ferjunni frá Bremerton yfir til downtown Seattle. Við röltum um og skoðuðum mannlífið. Fórum svo að sjálfsögðu á Pike Place Market og sáum fiskikallana kasta fisknum a milli sín og svona. Ég var svo að taka mynd af ógeðslega ljótum fisk sem heitir Monk Fish, þegar þeir kipptu i einhvern spotta og létu helvítis fiskinn kippast til! Mér og fólkinu í kringum mig brá alveg óstjórnlega! Hahaha.. þetta var svo fyndið!
Svo fórum við á sjávarréttaveitingastað (surprise surprise) og fengum okkur gufusoðinn skelfisk svo sem clams, mussels og raekjur.. þessu var öllu bara skellt a borðið hjá okkur og við fengum smekki og allt svo ekkert myndi nú sullast.. hehe... Ég held ég láti myndirnar tala sínu máli...

  

  

  
Gerður bannaði mér að setja mynd af henni á netið, en ég vildi bara sýna fram á að ég hafi ekki étið þetta allt alein.. haha.. svo ég vona að þetta sé í lagi...;)


Eins gott að þeir létu okkur hafa smekki.. sjáiði bara borðið!!! hahaha

  
Þetta er svo Seattle og Space Needle séð af ferjunni þegar við vorum að sigla á heimleið.

Þetta var ótrúlega skemmtilegur dagur.
En núna sit ég a Gig Harbor Inn með fartölvuna mína og borða besta clam chowder sem ég hef smakkað á ævinni. Mamma og pabbi geta öfundað mig af öllum mætti núna;). Í gær borðuðum við rosalega steik sem Jónas grillaði á gasgrillinu og meðlæti á heimsmælikvarða. Ég get ekki sagt að maður svelti hérna!!
Á morgun keyrum við svo niður til Battleground til Jónasar og Tabithu og ég fer með þeim í eitthvað partýa og skemmtistaðarölt í tilefni gamlársins. Vona að það verði skemmtilegt. Það datt einhvernveginn allt annað í sundur sem ég ætlaði að treysta á... Vivian vinkona mín í Vancouver þurfti að fara til Arizona því pabbi hennar varð skyndilega veikur, þannig að ekki gat ég farið þangað að djamma. Allir íslendingarnir sem Grétar þekkir eru að fara útúr bænum, Grétar og Erna eru sjálf að fara í skíðaferð til Kanada, Kyle kunningi minn úr skólanum er jafn týndur og ég og segist væntanlega enda með foreldrum sínum heima og gera ekki neitt... þannig að við björgum málunum með því að keyra niður til Jónasar og Tab. Ekki slæmt það! Mér þykir ótrúlega vænt um að Gerður og Jónas nenni að keyra þangað niðureftir, en Gerður hafði svo miklar áhyggjur af því að ég yrði föst með þeim á gamlárskvöld.. hahaha!!:)

En allavegana.. Vona að þið hafið öll góð plön fyrir gamlárskvöld og ætlið að kveðja árið með stæl!
Ég bið að heilsa ykkur öllum og segi bara takk fyrir góðar stundir á árinu 2006 og ég hlakka til að sjá ykkur í stuði árið 2007!!!:)
Ekki brenna ykkur á flugeldunum!! (þessu er sérstaklega beint til Ella... hahaha)
Over and out!
Gunnsa

31. desember 2006 klukkan 06:45
Gunnhildur Árnadóttir
Ditta skrifar ...
Hæ elsku Gunnsa mín!
Langaði bara að óska þér gleðilegs nýs árs og svo innilega takk fyrir allt gamalt og gott í gegnum tíðina.
Bestu kveðjur
Ditta
31. desember 2006 klukkan 20:42
Ólöf-ađal skrifar ...
OOOOOOOOOOOJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJJ........mig langar sko ekki í fisk... :(
Hafðu það gott í kvöld sæta mín...
ég hringi í þig á eftir
ok bæ
31. desember 2006 klukkan 22:38
Rakel Anna skrifar ...
hæ hæ :)
Langaði að segja gleðileg jól ;) og gleðilegt nýtt ár Dunnhildur mín..kiss kiss og miss you :)
02. janúar 2007 klukkan 02:18
Berglind B ;) skrifar ...
Gleðilegt ár elsku Gunnhildur mín :)
kossar :*
02. janúar 2007 klukkan 03:00
Stefanía Sigurjónsd skrifar ...
Gleðilegt ár dúlla takk fyrir gömlu ;)
Kveðja Stefanía í Hveró
02. janúar 2007 klukkan 19:58
Auđur skrifar ...
Gleðilegt ár elskan mín!! vona að jólakortið hafi skilað sér þrátt fyrir stafsetninguna á umslaginu :Þ
Knús :*
02. janúar 2007 klukkan 23:35
alfa skrifar ...
get ekki neitað því að ég er barasta farin að hlakka til að sletta út klaufunum þann 15 maí.. ;)

Þá verður dansað.. dansað til að gleyma.. muhahaha.
03. janúar 2007 klukkan 06:39

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...