
Takk fyrir yndislegar stundir á árinu sem nú er liðið og takk fyrir þær súrsætu líka...
Vonandi áttuð þið öll alveg yndisleg áramót og hafið vaknað tiltölulega þynnkulaus í gær (eitthvað annað en ég... ehemmm...). Ég fór í partý með Jónasi frænda, Tabithu konunni hans og Joe vini þeirra. Fyrst fórum við samt út að borða á brasilískan stað sem var með besta mat sem ég hef smakkað í langan tíma. Og hryllilega góðum mojitos sem var hægt að fá með ástaraldinbragði, mangóbragði, granateplabragdi eða jafnvel gúrkubragði! Og ótrúlegt en satt þá var gúrkumojito alls ekki svo slæmur!! Eiginlega bara rosa góður!!;) Alltaf er maður að prófa eitthvað nýtt.
Ég ætla að skella inn nokkrum myndum frá kvöldinu.

Tabitha, Joe og Jonas og allur godi maturinn! Ég og Jónas frændi

Ég og Jónas aftur.. núna eftir miðnætti. Jónas og Tabitha sæt saman!

Tabitha og partýhaldarinn Renee. Ég missti mig smá í sjálfsmyndunum..
Jæja... þar hafiði það..
Ég ætla samt að prófa að hlaða inn myndum á myphotoalbum síðuna, bara til að athuga hvort þeir séu búnir að laga það sem var að.. læt ykkur vita ef það virkar.
Elska ykkur öll og sakna ótrúlega mikið!! Ekki sakna mín of mikið.. hehe...
Knús og kossar
Gunnsa
03. janúar 2007 klukkan 07:38
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir