fáránleg saga..
Haha.. verð að segja ykkur æðislega sögu! (sagan um ferdina til Seattle með Grétari og Ernu kemur í næstu færslu.. hún er æðisleg líka!)En sagan mín er sú, að kona sem vinnur með Dino ætlaði í fyrra að fara í ferðalag með dætrum sínum. Á síðustu stundu urðu þær að hætta við og skila flugmiðunum. Þær fengu inneignarnótu upp á 621$ hjá Southwest flugfélaginu. Inneignina verður að nota fyrir 21. janúar n.k., annars eyðist hún. Aumingjans konan kemst ekkert í burtu fyrir þann tíma og bauð þessvegna Dino að nota inneignina ef hann gæti.
Auðvitað bauð hann mér að fara eitthvert með sér. Við spáðum í að fara til Vegas og vorum næstum því búin að kaupa miða þangað. En útaf því að Dino á lítinn pening og okkur langaði að fara eitthvert í sól, þá ákváðum við að bíða aðeins með þetta og panta bara miðana þegar ég kæmi aftur til Chicago.
Akkúrat þegar ég er nýlent í Chicago hringir pabbi í mig og segir mér að hann og mamma hafi fengið foreldramiða í gegnum systur mína og væru að skella sér til Orlando í Flórída. Þau fóru í gær. Þau eru með litla íbúð við ströndina og bílaleigubíl.
Ég auðvitað spurði þau bara hvort ég mætti ekki heimsækja þau?!! Auðvitað mátti ég það og seinna um kvöldið vorum ég og Dino bæði komin með flugmiða til Orlando, ókeypis gistingu og verðum sótt og keyrð á flugvöllinn!!;) Hversu ótrúlega frábært er þetta?! Við förum á laugardaginn og komum aftur á mánudag.
En þetta er ekki það eina góða sem út úr þessu kom. Neinei, flugmiðarnir okkar voru á einhverju ofur-net-tilboði og því voru 370 dollarar eftir af inneigninni minni. Linda herbergisfélagi sem á kærasta í Los Angeles vildi auðvitað ólm fara í skreppitúr til að heimsækja kallinn og hún fékk líka miða fram og til baka til LA og fór í dag og kemur aftur á mánudaginn.
Með þessu góðverki sínu hefur þessi blessaða kona gert samtals 6 manns mjög hamingjusöm,
mig, Dino, mömmu, pabba, Lindu og kærastann! 6 flugur í einu höggi! Gerist ekki betra! Við ætlum sko að gefa henni einhverja rosa flotta flórídíska gjöf og Linda ætlar að kaupa los angelíska gjöf og vonandi að við getum glatt hana á móti.
Þetta sannar fyrir mér að það er alveg til gott fólk í heiminum:)
Og ég trúi á tilviljanir!!
Lovju pípúl!
Gunnsa.. á leiðinni að knúsa gamla settið! Fjórum mánuðum áður en áætlað var!!
Gleði gleði gleði!
18. janúar 2007 klukkan 10:57
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
Ohhh elska þegar eitthvað svona óvænt gerist!!! :)
Ég segi þá bara góða ferð og hafðu það gott með ma&pa, ég bið innilega vel að heilsa!!
Endless *knús&kossar*