Allllltílææææææ.....

Okei, fyrst Svenni sjálfur er farinn ad skilja eftir skilaboð og óska eftir bloggi, þá held ég að það hljóti að vera kominn tími á að henda einhverju hérna inn. Mitt vandamál er bara hversu viðburðaríkt líf mitt er, ég hef frá svo mörgu að segja.. hahaha.... svo ég vitni nú í hana Sunnu mína: my diamond shoes are too tight and my wallet is too small for my twenties...  þvílíku vandamálin sem maður stríðir alltaf við!

PARTUR 1

Fyrst af öllu ber víst að byrja þar sem frá var horfið, ekki satt? Ég ætla að stikla á stóru og segja aðeins frá ferðinni sem ég fór með Ernu og Grétari um Seattle 13. janúar.
Þau tóku á móti mér á ferjubryggjunni og haldiði ekki að hann Grétar, þessi elska, hafi borgað mér sirka 9 ára gamla laufabrauðs-skuld! (þeir skilja sem skilja.. þið hin, i´m so sorry...)
Grétar, takk fyrir mig!!!:)

Við fórum svo bara túristarúnt um Seattle, fórum á Pike Place og í underground túrinn (sem kom skemmtilega á óvart) og fórum upp í international district þar sem við fengum rosalega góðan mat (sem var aðeins of sterkur að sumra áliti.. hehe) Allt í allt, mjög góður dagur! Takk fyrir mig, krakkar!!;) Erna, við sjáumst á eyrinni í sumar!
     
  


PARTUR 2

Já, svo fórum ég og Dino náttúrulega í eftirminnilega flórídaferð þar sem við hittum mömmu og pabba og höfðum það gott í rúma tvo daga í glampandi sólskini! Ef ég á að rekja ferðasöguna í stuttu máli, þá er hún einhvernveginn svona:
Flug - lending - hitta settið - keyra til Siesta Key - fara á ströndina - út að borða - martinibar - sofa
Vakna - ströndin - sólbrenna - versla - sundlaugin - ströndin - út að borða - bar - sofa
Vakna - ströndin - sundlaugin - ströndin - keyra á flugvöllinn - flug - lending - KULDI!!

Já, svona gekk ferðin fyrir sig og var alveg hreint yndisleg í alla staði!!! Ég ætla að setja inn nokkrar myndir..
  
     
  
Takk fyrir mig, mamma og pabbi!!!:)


PARTUR 3

Á laugardaginn héldum við upp á afmælið hennar Vickyar vinkonu minnar frá Argentínu. Við fórum út að borða á hinn yndislega stað Sushi Samba, sem er með mat frá Japan, Brasilíu og Perú og sú blanda kemur alveg ótrúlega vel út. Eftir matinn, fórum við á Soundbar, sem er barinn sem Dino vinnur á. Hann gat reddað okkur öllum ókeypis inn (kostar annars 20$) og inn í VIP herbergið :) Þar sátum við í góðu yfirlæti milli þess sem við hristum rassana á dansgólfinu. Þetta var mjög skemmtilegt kvöld. Hér koma myndir:

  
Ammlisbarnið, með kökuna - orðin 24 ára.     Dino, Vicky og Stefan taka því rólega á Sushi Samba
  
Fyrir tekíla -                                                       Eftir tekíla (allir með sítrónu í munninum.. hehe)


PARTUR 4

Já, svo er skólinn bara byrjaður á fullu, ég er byrjuð í verknámi í fæðingarhjúkrun á spítala sem heitir Highland Park og er sirka hálftíma keyrslu í burtu. Ég þarf að vakna klukkan 5 á morgnana til að fá far með bekkjarsystur minni þangað, því ég þarf að fara út og kaupa morgunmat og svona, og við eigum að vera mættar korter í sjö. Á deildinni minni er allt ótrúlega flott, lítur meira út eins og hótel heldur en spítali. Þetta er svokölluð LDRP deild sem stendur fyrir Labor-delivery-recovery-postpartum, sem þýðir að konan er í sama herberginu frá því að hún kemur inn og þangað til að hún fer heim. Allar græjur eru á hjólum, þannig að þær eru teknar út eftir fæðinguna, og þá lítur herbergið bara alveg eins út og hótelherbergi, með viðarhúsgögnum og öllum þægindum!
Á deildinni eru öll börn með þjófavörn um ökklann (án gríns) sem virkar þannig að ef farið er með barnið of nálægt hurð sem fer út af deildinni, þá læsast allar hurðir og lyftur í þeirri álmu og enginn kemst lönd né strönd! Barnsrán af fæðingadeildum er víst vandamál sem er algengara en maður vill láta sér detta í hug og þetta er algjör nauðsyn. Ég skal segja ykkur betur frá deildinni þegar ég hef fengið meiri reynslu af henni.. en ég er að fara þangað í fyrramálið. Ég á að fá að fylgjast með keisaraskurði á morgun ef það verður einhver á dagskránni. Spennó spennó!
Ég er að passa akkúrat núna og Emil Örn sefur værum svefni inni í herbergi. Hann er farinn að ganga smá og er kominn með tvær tennur.. allt á meðan ég var í burtu í jólafríinu! Ótrúlegt hvað tíminn líður hratt! Hann er svo mikið krútt þessi mús að það er magnað! :)

Jæja, vonandi eruð þið ennþá að lesa...
En ég skal hætta núna...
sé ykkur seinna..
blehhhhhssssss;)
30. janúar 2007 klukkan 10:11
Gunnhildur Árnadóttir
Ólöf skrifar ...
hæ gaman að lesa um lífið þitt....væri óskandi að ég ætti mér sovna mikið líf. Þú getur samt skoðað myndir af því fáa sem ég geti á mínu bloggi hehe. Hlakka til að fá þig heim...nenni ekki að bíða alltaf eftir bloggi til að vita eikkvað um þig eða borga milljón á mínotuna til að kjafta...
love you longtime :)
Ó
31. janúar 2007 klukkan 08:37
Sonja hjúkkunemi skrifar ...
Hæ!
Bara láta vita að ég kíki reglulega hérna inn og skoða hvað þú ert að gera spennandi í ameríku :)
Hafðu það gott
Kv. Sonja
01. febrúar 2007 klukkan 01:26
Sunnfríður skrifar ...
Hahahahaha jibbíííí - vitnað í sunnulinginn !
ÉG fer aaaaalveg bráðum mjög fljótlega að blogga..... Er að reyna að raða þessu stórkostlega ferðalagi saman í hausnum á mér. Eeeeen það eru komnar myndir.... reyndar ekki í tímaröð, en þú lifir það af.

Hlakka til að fá þig heim hunang.

love&peace
01. febrúar 2007 klukkan 15:41

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...