KALT!!!!!!!!!
Okei...Hérna er 28 stiga frost!
Ég fór í:
tvenna sokka
kuldastígvél
gammósíur
tvennar buxur
hlírabol
bol
flíspeysu
hettupeysu
úlpu
húfu
vettlinga
trefil
.......til þess að fara í hádegismat!
...og mér var SAMT kalt!
djísússss... svo segir fólk: "but you´re from Iceland, you´re used to this, right?"
uuuuuuuu.... NEI!!!!!! Neinei nei nei nei NEI!!
Ég er ekki vön þessu, og langar ekki að venjast þessu!
Mig langar ekki útúr húsi!
Superbowl í kvöld
Chicago Bears og Indianapolis Colts
Þvílíka "þjóðarstoltið" í gangi hérna í Chicago.. eins og allir laumu-Bears-fans hafi komið útúr skápnum á síðustu vikum. Allir með Bears húfur, trefla, vettlinga, í Bears peysum, buxum eða hvaðannað sem til er merkt þessu liði. Ég hef ekki hugmynd um hvaðan allt þetta fólk kemur! En ég get ekki verið minni maður og neyðist því til að horfa á leikinn, þó ég skilji ekkert í amerískum ruðningi og leikirnir séu oftast hátt í 4 tíma. Spennandi....! NOT... hehe
Ég er skriðin undir sæng...
í öllum fötunum...
Hilsen frá köldu köldu Superbowl sturluðu Chicago!
brrrrrrrr
05. febrúar 2007 klukkan 02:56
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir