Smá Öppdeit..
Jæja krakkarþað er aðeins búið að skána hérna veðrið, núna er 'bara' 13 stiga frost.. en það er nú þolanlegt.
Ósköp tíðindalítið upp á síðkastið. Bara rosa gaman í verknáminu, sá tangarfæðingu á miðvikudaginn sem var mjög áhugavert. Svo hef ég bara verið að gera líkamsmat á nýfæddum börnum og gera "care plans" um þau sem er eitt það leiðinlegasta sem ég hef gert... Hjúkrunargreiningar, verkþættir og útskýringar... jeijjj... gotta lovitt maður.
Helgin var í rólegri kantinum, fórum aðeins út í bjór á fimmtudaginn en aldrei þessu vant fór Gunnhildur snemma heim! Var svo að passa allan föstudaginn og fór svo út á frægan blús bar með Dino, Vicky, Lauren og Marko sem var mjög gaman. Við Vicky vorum vissar um það að Dennis Quaid sjálfur sæti þarna á einu borðinu, en Dino og Lauren vildu ekki alveg vera sammála þessu. Við komumst væntanlega aldrei að hinu sanna í málinu, en þangað til ætla ég að halda því fram að ég hafi séð celebrity.. hahaha
Laugardagskvöldið fórum ég og Linda heim til Kelly og Danny þar sem við pöntuðum okkur heimsendan mat og horfðum á sjónvarpið og höfðum það gott. Fór aftur snemma heim og svaf í 11 tíma straight. Langt síðan ég hef gert það og ég greinilega þurfti á því að halda.
Á sunnudaginn fórum við ásamt nokkrum stelpum af heimavistinni á leikrit sem var byggt á emailum sem Rachel Corrie, friðargæsluliði í Palestínu sendi fjölskyldu sinni og vinum meðan hún dvaldi þar. Hún var myrt 2003 þegar ísraelskur "bulldozer" keyrði yfir hana þar sem hún var að reyna að stöðva hann frá því að brjóta niður hús almennra borgara sem hún var að reyna að vernda. Hún hafði greinilega miklar og stórar hugsjónir og skrifaði mjög hreinskilnislega um reynslu sína. Þetta var mjög sorglegt en áhugavert leikrit sem snerti mann mjög. Maður hlýtur að velta fyrir sér hverju þetta skilaði og hversu miklu einn einstaklingur getur áorkað í baráttu við þessi ógnarstóru stríðandi öfl sem þarna eru. Maður veltir fyrir sér hvort hún hafi með dauða sínum haft meiri áhrif heldur en ef hún hefði haldið starfi sínu þarna áfram um óráðinn tíma.... ?
Í dag hef ég svo bara verið að laga aðeins til í herberginu mínu, þvo þvott og svona og taka því rólega. Þarf að fara snemma að sofa því ég þarf að vakna í verklegt klukkan 5 í fyrramálið.. jeij....!
kossar og knús
Gunnsa
(Guðslifandi fegin að vera í Chicago en ekki í Palestínu...)
13. febrúar 2007 klukkan 01:28
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
En annars var alveg hriiiiikalega gaman hjá okkur og eitt það magnaðasta sem ég hef séð á æfinni!! Þú verður bara að kíkja á bloggið til að fá alla ferðasöguna og sjá myndirnar.. :)
En við þurfum nú samt að farað hittast á msn bráðlega til að taka pínu tjatt...alltof langt síðan síðast.. :(
Hafðu það sem best snúllan mín þarna í frostinu.. :)
*knús*