Veik aftur:(
Já, þið lásuð rétt. Gunnhildur er aftur orðin lasin.Í gærmorgun vaknaði ég af værum svefni við það að mér fannst 2 tonn liggja ofan á bringunni á mér. Ég hóstaði ógurlega og mældist með 37.5 stiga hita. Fyrir þá sem þekkja mig, vita þeir að ég fæ aldrei hita og ef ég er virkilega veik, þá hef ég í mesta lagi fengið 38°c.
Allavegana, gærdagurinn var ágætur en svo í morgun ákvað ég að fara til skólahjúkkunnar. Hún gaf mér hóstasaft og einhverjar töflur. Tveimur tímum eftir heimsóknina til hjúkkunnar byrja ég að skjálfa óstjórnlega og mér verður svo illt um allan líkamann að ég fór að hágrenja og hringdi í mömmu. Þá hafði hitinn, á tveimur tímum rokið upp í 38,5 þannig að mín er ekki alveg í rónni. Ég hringi aftur í skólahjúkkuna sem hefur miklar áhyggjur af mér og ákveður að skutla mér upp á spítala til læknisins. Eftir mikla orrahríð spurninga læknanema sem kom til að taka af mér viðtal, kemur "læknirinn" inn í íþróttabuxum og bol, lætur eins og hann eigi heiminn, lætur læknanemann segja sér svona sirka 1/fimmta af því sem ég hafði sagt honum og segir svo...
.... you have a cold.
Theink jú verrí næs!
Ég held ég viti aðeins betur þegar ég er með kvef eða eitthvað verra. Ef ég væri með kvef, hefði ég að sjálfsögðu ekki látið keyra mig, grátandi upp á spítala!! Ertu hálfviti!
Ég þurfti að grenja útúr honum eitthvað til að láta mér líða betur og hann lét mig fá hóstamixtúru með killer skammti af kódeini sem veldur því að ég verð öll skrítin og mjúk að innan.. haha.. og get ekki sofið fyrir fimmaur. Svo hósta ég engu að síður....
En jæja, mér líður allavega ömurlega.. vinkona mín kom inn áðan og reif ofan af mér teppi og opnaði gluggann því að hennar sögn var víst eins og gufubað hérna inni og ég fann ekki bofs fyrir því.. Ég bara skalf undir sænginni minni í tvennum buxum og peysu...
Ég hef verið að borða kjúklinganúðlusúpu að amerískum sið, sem og bláberjasúpu að mömmu-sið. Mér líður betur að innan þegar ég borða bláberjasúpuna, held það sé kannski bara tilhugsunin um mömmu..:)
Love y'all....
hugsiði fallega til mín
knús og kossar.. (ekki samt alvöru því ég vil ekki smita ykkur...)
Gunnsa lasarus
17. febrúar 2007 klukkan 03:01
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
það eru allir í ruglinu greinilega...veikir til skiptis...
Ég sendi þér hreei-huxanir :)
kv Ólöf með sýkingu í auganum og lýtur út einsog hringjarinn frá NorteDam :(