Uppdeit um veikindin
Ojá, ég er ennþá lasin..Allt komid oní lungu núna, offkors....
Fór til hjúkkunnar í gær sem vildi senda mig hið snarasta til læknisins aftur og hneykslaðist og hristi hausinn yfir því hvað læknirinn á föstudaginn gerði og sagði.
Ég fékk tíma hjá lækni í morgun og fór og hitti hann, og hann hafði miklar áhyggjur af mér greyið, lét mig fá sýklalyf og sterapúst og sagði mér að ef ég skánaði ekki eftir 2 daga vildi hann fá röntgenmynd af lungunum í mér. Þannig að það helsta sem er að hrjá mig í dag eru magaverkir útaf sýklalyfjunum og skjálfti og taugatitringur útaf sterunum.. haha... Þannig að aukaverkanirnar af lyfjunum tóku við af veikinda einkennunum.. en svona er þetta... einhverju verður að fórna.
Ég fór ekki í verklegt í dag eða í gær, enda vil ég ekki smita litlu sætu börnin á fæðingadeildinni.
Veit ekki hvernig ég á að vinna það upp, ég var að enda við að klára verkefnið sem kennarinn okkar lét okkur sem ekki komumst vegna óveðurs í síðustu viku gera sem refsingu. Hún lét okkur taka 30 mest notuðu lyfin í fæðingahjúkrun og skrifa niður virkni, skammta, leið, aukaverkanir, viðvaranir og "contraindications" fyrir þau öll! jeminn eini það tók sko tímann sinn.. en bara copí peist uppúr lyfjabókinni minni. Vonandi verður hún sátt við það.
Ég er annars bara búin að vera að læra og dúlla mér í viku núna... Það að læra tekur mig samt alveg þrefalt lengri tíma.. ég hugsa og hreyfi mig mikið hægar þegar ég er veik.. hehe...:)
John vinur minn ætlar að koma í heimsókn í kvöld, ætli við glápum ekki bara á video eða eitthvað. Ég er ekki ennþá farin að fara út úr húsi. Ég og Jamie erum núna bara að lakka á okkur neglurnar:)
Vonandi þið séuð ekki líka lasin... þetta er ömurlegt! hahahaha
Elska ykkur öll
Gunnsa
22. febrúar 2007 klukkan 03:07
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
Ég skal lækna þig - gef þér hákarl og íssslenskt brennivín, sviðasultu og LÝSI ! Don´t forget the lýsi !
...þá verður orðin hress á 12 tímum !