Aldeilis fréttir!
Já, nú er ég aldeilis með fréttir.Þið munið væntanlega öll eftir litla ljóta sporðdrekatattooinu sem ég er með á ökklanum. (Nema það séu einhverjir að lesa þetta blogg sem þekkja mig ekki neitt....) En allavegana... Í langan tíma hefur mig langað til að láta setja eitthvað fallegt yfir sporðdrekann til að fela hann. Ég er í jafnlangan tíma búin að vera að hugsa um hvað mig langi að setja yfir hann. Svo um jólin komst ég loksins að niðurstöðu. Mig langar í lilju. Í minningu Lilju. Fallega mynd af liljublómi. Ég var svo búin að velta fyrir mér hvar ég ætti að láta gera þetta. Ég er búin að skoða heimasíður allra tattostofa í Chicago liggur við og skoða verk endalaust margra tattoo artista. Fann svo loksins einn sem mér líst rosa vel á. Hann heitir Mario Desa og er búinn að vera að í 10 ár. Hann vinnur á Chicago tattoo company sem er ein elsta og virtasta stofan í Chicago.
Og í gær lét ég verða af þessu. Útkoman er að mínu mati algjört æði. Ofurfalleg mynd af fallegri lilju sem hefur svo ótrúlega mikla þýðingu fyrir mig að það er ekki séns að ég fái nokkurntímann ógeð af henni.
Ég ætla að setja hérna inn tvær myndir af tattooinu. Það er að sjálfsögðu ekki gróið ennþá og því smá blóð/sár í myndinni en það á eftir að jafna sig á næstu vikum. Ég biðst líka afsökunar á órökuðum, ofurhvítum leggjum.. haha...


Endilega segið mér hvað ykkur finnst.
Hreinskilni vel þegin:)
Over and out.
Gunnsa
Hreinskilni vel þegin:)
Over and out.
Gunnsa
23. febrúar 2007 klukkan 19:19
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
yndislegt.. á alla vegu! ;)
eg hlakka til að syna þer mitt..