halló halló halló

Sælt veri fólkið.

Ég veit að ég er ekkert búin að láta í mér heyra í langan tíma... og ég biðst afsökunar á því, en það er bara búið að vera alveg brjálað að gera hjá mér. Eftir að ég var lasin, var ég komin alveg rosalega langt á eftir í öllu í skólanum og er búin að vera á fullu við að vinna það allt upp. Ég er loksins komin á réttan kjöl aftur og ég tók próf í morgun sem ég fékk 8,5 í, þannig að það verður víst að teljast ágætt.

Það sem er helst að frétta af mér er samt að ég fór á geðveika tónleika um daginn, með Gnarls Barkley og Red Hot Chili Peppers!! Ójá, á SÖMU tónleikunum.. magnað alveg hreint! Eins og þið getið ímyndað ykkur, þá voru þetta æðislegir tónleikar og virði hverrar krónu. Ljósasjóvið hjá Chilipiprunum var ótrúlegt.. það rosalegasta sem ég hef séð. Ég ætla að reyna að hlaða inn myndbandi sem gefur ágætis hugmynd um þetta.. vona að það gangi upp. Og að sjá Cee-lo Green og DJ Danger Mouse taka Smiley faces og Crazy.... óborganlegt!!!!!;)

Akkúrat núna er ég samt að passa og Emil Örn þessi elska var svo vinsamlegur að sofna án átaka, kúrði sig bara upp í hálsakot á mér og lá þar og dundaði sér við að fikta í hálsmeninu mínu í svona hálftíma og steinsofnaði svo og rumskaði ekki þegar ég lagði hann í rúmið. Þetta hefur aldrei gengið svona vel.. ætli hann sé ekki bara svona úrvinda eftir daginn á leikskólanum. Ég er því baraað horfa á sjónvarpið á E! True Hollywood Story um Lionel og Nicole Richie. Voða áhugavert eða þannig.

Síðasti þátturinn sem ég horfði á var My Super Sweet Sixteen á MTV sem er klikkaður raunveruleikaþáttur um brjálæðislega ríka krakka hérna í Ameríku sem halda upp á 16 ára afmælin sín með meiri stæl heldur enJóhannes í Bónus heldur upp á sextugsafmælið... úff... þau fá öll Lexusa og BMW-a í afmælisgjöf og fá geðveikar hljómsveitir til að spila og dansara og mæta á svæðið í þyrlum og læti!! Þetta er eiginlega of fáránlegt til að vera hlægilegt...

Annars vil ég bara taka það fram að það er bara mánuður þangað til að ég hitti hana Evu mína í New York baby!! JEIJJJ!!! Við ætlum sko að mála borgina rauða! Taka sex and the city túrinn og taka svo chinatown með trompi!!:) Svo helgina eftir það, þá ætlar Eva að koma til mín í Chicago og ég ætla að sýna henni what it´s all about!!!;) OHHHHHH ég hlakka svo til! Fæ fiðrildafiðring í magann bara við tilhugsunina!!! JEIJ!!

En jæja, ég ætla að reyna að læra aðeins heima...

Eigiði yndislegan dag...

Knús og kossar
Gunnsa
06. mars 2007 klukkan 03:22
Gunnhildur Árnadóttir
lísa skrifar ...
loksins kom blogg. ohh, vildi að ég gæti bara komið til new york sísvona og skellt mér til chicago í leiðinni. alltaf gott að láta sig dreyma smá, right? :)
knús og kossar luv.
06. mars 2007 klukkan 14:19
Matta skrifar ...
Gaman að heyra loksins frá þér skvís. Ójá væri maður ekki til í að "skreppa" aðeins til NY og kíkja í búðir og hafa gaman. Hljómar alls ekki svo illa. Hafðu það gott elskan ;)
06. mars 2007 klukkan 20:55
ólöf skrifar ...
jám ég væri sko alveg til í það ef ég væri ekki fátækur námsmaður á leiðinni í launaLAUST nám í útlöndum...nú er það bara spara og spara...fyrir ólypíuferðinni minni til ítalíu beiby..jé...
Verður samt ábyggilega ÓGEÐSLEGA gaman hjá ykkur skvísur :):) efast ekki um það..
ok bæ
07. mars 2007 klukkan 01:27
Berglind B skrifar ...
ÉG efa það ekki það það eigi eftir að vera súper úper gaman hjá ykkur... verðið aðalskvísurnar á svæðinu :D
Annars hlakkar mig svo til að fá þig heim.. þá verður sko gaman ;)
ferðalög*slúður*kúra ;)
07. mars 2007 klukkan 14:48
Eva í Herning skrifar ...
jeijjjj!!!!! ég hlakka líka alveg roooooosa mikid ad koma!!!!! Tad er svo gott ad vera í fatahönnun þá hefur maður endalausar afsakanir til að ferðast til spennandi borga, kaupa tonn af tískublöðum og versla föt!!! (þetta er nebbla allt innblástur sjáiði til) ...ég fæ sko bara meira en fiðrildafidring í magan!!! ég er bara að kafna úr spenningi og visaskvisa farin að hitna gífurlega mikið!!!!!! vá hvað þetta verður æðislegt!!!!!! ...en ég veit að Berglind verður kannski ekki ánægð að heyra þetta, en.... GUNNSA LANGAR ÞÉR EKKI AÐ VERA Í DK Í SUMAR??? ÉG ER MEÐ LAUST HERBERGI Í ÍBÚÐINNI, NIÐRI BÆ OG RÉTT HJÁ STRÖNDINNI :) VIÐ VINNUM BARA Á BAR EÐA EIKKAÐ :) love you og sé þig eftir minna en mánuð!
07. mars 2007 klukkan 18:02
sunna skrifar ...
ooooohhhh.... viltu kaupa handa mér kínverja í Chinatown ?
08. mars 2007 klukkan 10:44

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...