Spring Break!

Mér láðist víst að segja ykkur, enda ákveðið á síðustu stundu, að ég og Stefan, austurrískur strákur úr skólanum, ákváðum að taka okkur smá ROAD TRIP fyrir Spring Break, sem er vikulangt frí í skólanum. Við tókum okkur bílaleigubíl og ætlum að keyra niður til Orlando, Florida og ná okkur í smá sólskin. Þetta er sirka 18-20 tíma keyrsla og þessvegna ákváðum við að taka þetta í tveimur áföngum. Við erum rétt í þessum töluðu orðum stödd í Nashville, Tennessee, heimabæ kántrítónlistarinnar! Keyrðum 8 tíma í dag og ætlum að taka 10 tímana á þetta á morgun. Hingað til hefur gengið alveg rosalega vel og við búin að keyra frá Illinois, í gegnum Indiana og Kentucky og erum núna eins og áður segir í Tennessee. Í Kentucky fékk ég mér að sjálfsögðu KFC en varð fyrir hrikalegum vonbrigðum.. jafnast ekkert á við íslenska KFC!
Keyrðum framhjá mjög skemmtilegum gatnamótum í Kentucky.. þar var Whitestown til vinstri en Brownsburg til hægri... maður veltir fyrir sér hvaðan þessar nafngiftir koma!;)
Við erum með milljón geisladiska með í för og höfum þessvegna böns af skemmtilegri tónlist fyrir ferðina og því var ferðin í dag bar aótrúlega skemmtileg! Blöstuðum kántrítónlistina þegar við komum í suðurríkin.
Læt ykkur vita nánar af ferðum okkar á morgun þegar við verðum komin til Orlando!
Knús og kossar,
Gunnsa
11. mars 2007 klukkan 00:29
Gunnhildur Árnadóttir
hildur lind skrifar ...
djöf...líst mér vel á þig!!!! ;D
skemmtu þér nú ógó vel skvísan mín og náðu í pínu sól fyrir mig líka!!! ;)
11. mars 2007 klukkan 14:03
Eva Dögg Rúnarsdóttir skrifar ...
joleene joleene joleene joleeeeeeeneeeee!!!!!!!
það minnir mig bara á þig!! eins gott að þú hafir blastað það!!! love you!!
13. mars 2007 klukkan 17:22

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...