Of gömul?

Gærdagurinn var rosalega skemmtilegur... Pool deck party a bakvið hótelið og svo bara hangið á ströndinni og svona... En eftir ad hafa sötrað bjór í sólskininu allan daginn þá bara urðum við að leggja okkur í eftirmiðdaginn. Vöknuðum ekki fyrr en um tíuleytið um kvöldið og höfðum þá engan veginn lyst á bjór.. haha.. Drifum okkur nú samt af stað á barinn/klúbbinn þar sem aðalfjörið átti að vera. Þar leið okkur eins og ellismellum á leikskóladansiballi... Meirihlutinn af fólkinu var með stórt X á handarbakinu sem þýðir að það má ekki drekka og er þarafleiðandi á milli 18 og 21 árs. Við vorum svona tvö af 25 manns þarna inni sem fengum appelsínugul armbönd sem þýddu að við værum á löglegum drykkjaraldri... haha...
Gáfumst bara snemma upp, pöntuðum okkur pizzu og fórum heim á hótel að sofa.. haha...
Er þetta merki þess að maður sé orðinn og gamall fyrir svona vitleysu?!
Eins og áður er ég vöknuð fyrir allar aldir (annað ellimerki....) og ætla að skella mér á ströndina.
Knús og kossar
Gunnsa
15. mars 2007 klukkan 16:25
Gunnhildur Árnadóttir
Sunnfríður skrifar ...
...ohhh.. ég er græn af öfund !!! Skemmtu þér í þúsund mola !!! *knús*
15. mars 2007 klukkan 16:45
ólöf skrifar ...
haha já við erum að eldast...segir sig sjálft þegar ALLLLLLLLIIIIIIIIIR eiga börn nema við :)
Við verðum einar eftir á djamminu sitjandi á Dubliner með bór í annari:)
DJÓK
kv. ólofuð og barnlaus
ps: LOVE YOY
16. mars 2007 klukkan 11:44

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...