BRJÁLAĐ AĐ GERA!!!

Jæja, ætli maður skuldi ykkur þá ekki eins og einn góðan pistil, þó ég hafi ENGAN VEGINN tíma til þess! Það er sko allt að verða vitlaust hérna, maður á sko greinilega ekki að sitja auðum höndum síðustu vikurnar í skólanum. Ég byrjaði nýjan áfanga um leið og ég kom heim úr spring break. Það er heilsugæslu og heimahjúkrun og í þeim áfanga voru takkfyrirkærlega 4 próf í fyrstu vikunni! Héðanaf verða svo 2 próf í hverri viku og þetta er sko ekkert grín! Svo tók botnlanginn í Jamie vinkonu minni upp á því að springa í síðustu viku og ég eyddi til dæmis 13 tímum með henni á spítalanum á fimmtudaginn, fylgdi henni í allar rannsóknir og sat svo og beið á meðan hún fór í aðgerð kl hálfellefu um kvöldið. Mamma hennar og pabbi búa 7 tímum í burtu og þau komu seinna um nóttina. Hún er mikið hressari núna, botnlangalaus...

Ég byrja í verknámi á morgun. Héðanaf verð ég á miðvikudögum í heimahjúkrun í mjög ríku úthverfi, en á fimmtudögum og föstudögum verð ég að vinna á heilsugæslustöð í hverfi sem heitir North Lawndale og er eitt þekktasta gettóið í Chicago! Þar eru íbúarnir 93,8% svertingjar. Meðal laun eru með þeim lægstu sem þekkjast í Illinois, teen pregnancies þrefalt fleiri en meðaltalið, sömu sögu má segja um ungbarnadauða. Martin Luther King flutti í hverfið í stuttan tíma eftir 1960 til að vekja athygli stjórnvalda á slæmum húsakosti og atvinnuástandi. Eftir að hann var myrtur voru gerðar uppreisnir í hverfinu þar sem talið er að Black Panthers hafi skipulagt skemmdarverk og fjöldi fólks fór um hverfið og braut allar rúður og skemmdu í öllum búðum og fyrirtækjum sem fyrir þeim urðu. Eftir þetta fór meirihluti fyrirtækjanna í hverfinu á hausinn og allt fór á niðurleið.
Þetta verður alveg ótrúlega áhugavert. Það er nú samt ekki laust við að maður hafi smá áhyggjur af því að taka strætó þangað (en við verðum samt tvær saman og alltaf í dagsljósi..). John vinur minn sem er svartur og ólst upp í southside chicago sem er líka hálfgert ghetto, sagði mér að hann myndi sjálfur ekki fara þarna inn í þetta hverfi án þess að eiga mjög mikilvægt erindi... ehemmm...

En já, viljiði ferðasöguna úr spring break? Ég ætla að hafa hana mjög stutta og skorinorða og nota myndirnar sem hálfgerða sögu...
En here we go...

Lögðum Chicago að baki okkur klukkan 10 á laugardagsmorgni


Þaðan lá leiðin til Nashville, Tennessee. Við komum þangað um klukkan 8 og fórum beint niður í bæ til að tékka á kántrímenningunni. Miðbærinn var ótrúlega skemmtilegur og líflegur og allar búðir opnar langt fram á kvöld. Það nýttum við okkur til að kaupa kúrekahatta (offkors...) og skoðuðum kúrekastígvél.
  



Og núna eru íslensku stafirnir eitthvað í rugli... ég er með ð og ö en ekki thonn og ae... thau bara hurfu!! Ojaeja....
Naesta dag tok vid 12 tima keyrsla til Orlando, Florida. Thar var heitt og yndislegt. Naesta dag forum vid i Disney World og forum i Epcot og Magic Kingdom. Thað var rosa rosa gaman! Við fórum til Mars, fundum Nemo, fórum í Snow White´s scary adventures, haunted house, splash mountain og space mountain, aevintyri med Lilo og Stitch og margt margt fleira...
  

Við vorum tharna langt fram á kvöld og kastalinn var thvílíkt flottur í kvöldljósunum og svo var flugeldasýning sem var alveg geggjuð!


En thegar við vorum búin að sjá Disney, thá ákváðum við að Orlando vaeri frekar boring... Svo við ákváðum að keyra til Daytona Beach sem er einn aðal spring break staðurinn í USA. Keyrðum líka framhjá race trackinu thar sem Daytona 500 er haldið... svona fyrir bílaáhugamenn...


Komum okkur fyrir á hótelinu okkar sem var alveg við ströndina.




Okkur fannst nú samt smá ógeðslegt að sjá thakið sem var úti fyrir svölunum okkar...


Síðan tóku bara við 3 dagar af sól og sælu, pool deck parties og strandarklúbbum! (Jeij... eins og fyrir galdra, birtust þ og æ aftur á sínum stöðum... jahérna hér...)






Og auðvitað varð að vera wet t shirt competition... Hef thessa mynd aðeins staerri, svona fyrir strákana!!... (og tha hurfu thonn og ae aftur af lyklabordinu.. hvad er i gangi?


Vid lögðum aftur af stað til Chicago á föstudagshádegi og vorum í raun ósköp ánægð að yfirgefa hótelið þegar þakið var orðið svona útlítandi:


Komum til Chicago á laugardagsmorgni klukkan 9, eftir 21 tíma keyrslu með samtals 6 pissustoppum. Skiluðum bílaleigubílnum, en á hann höfðu baest sirka 2500 mílur eftir thetta aevintyri okkar. Einhver mílu/kílómetrafróður má endilega reikna út fyrir mig hvað thad er oft í kringum ísland... allavega tvisvar, ef ekki oftar! En algjörlega thess virði!

Jaeja, ohhh hvad mér líður vel að vera búin að koma thessu frá mér.. svolítið asnalegt að vera að skrifa ferðasögu svona langt eftir heimkomu.. en thid heyrðuð ástaeduna... brjálað að gera! Laet heyra aftur í mér sem fyrst.. ÉG LOFA!!!

Knús og kossar... Gunnsa... sem kemur heim eftir fáránlega stuttan tíma!
28. mars 2007 klukkan 04:23
Gunnhildur Árnadóttir
lísa skrifar ...
geggjað, geggjað, geggjað! djöfull hefði ég verið til í þetta ferðalag með ykkur:) það var vel þess virði að bíða eftir þessu frá þér elskan:)
love you:*
28. mars 2007 klukkan 19:01
Sunna Ömmusystir skrifar ...
víííí.. gaman að sjá myndir !
Og JÁ JÁ JÁ Gunnhildur ég er svo sannarlega til í að taka svona kósýkvöld með þér - Leikhús, Brynjuís og SATC ;-) Yeahhh....
30. mars 2007 klukkan 11:17
ólöf skrifar ...
jamm ég fæ flasbakk þegar ég sé myndirnar úr disney sjéttans hvað ég fílaði þetta...og greinilega ógeðslega mikið fjör hjá þér :)
ÉG LAS BLOGGIÐ
HÚRRA!!!
love you
bæbæ
Ó
02. apríl 2007 klukkan 00:16
Stefí skrifar ...
shit!! hvað ég væri til að skella mér til þín!
Skemmtileg saga og flottar myndir.
Tu me manques ma belle:)
16. apríl 2007 klukkan 17:40

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...