1. maí
Ég trúi því engan veginn að það sé komið ár. Heilt ár síðan Liljan kvaddi okkur. Það sem ég myndi gefa fyrir að vera heima núna.. getað heimsótt hana í garðinn, knúsað Kristjönu og alla hina...
Samt er ég hálfpartinn fegin að vera ekki heima.. skrítið hvernig þetta er... Held það væri mjög erfitt að vera heima og hafa allt sem minnir mann á Lilju og 1. maí. Þegar við stóðum út á tröppum hjá Vinstri grænum eftir verkalýðskaffi sem breyttist í sorgarstund... Að vera í íbúðinni minni, þar sem ég, Heiða og Hlynur bjuggum saman í heila viku eftirá. Að sjá kirkjuna, kirkjugarðinn, kaffi Amour, listasafnið, Te og Kaffi og alla staðina sem minna mig á hana....

Liljan mín.. ég elska þig og mun sakna um alla tíð. Ég veit að þú brosir niður til okkar og segir okkur að vera ekki sorgmædd. Og við reynum... En það er erfitt...
Hvíldu í friði elsku engillinn minn.

Hún var hjá mér hér í gær
gekk um þessi gólf
Hún var glæsileg og geislandi í gylltum sumarkjól
Það var sól
himininn heiður og tær
og allt í lyndi lék
Nú er orðið hér svo hljótt
allt með öðrum blæ
Og nú heyrist hennar hlátur ekki lengur hér á bæ
Það er kvöld
senn kemur nóttin svo köld
og enginn mér við hlið
hvað tekur við?
Ég má ekki hugsa til þess
að ég sjái hana ekki á morgun
Fái jafnvel framar ei snert
Það er ómögulegt
ekkert líf
Ég gæfi hvað sem er
fyrir að hafa hér allt
eins og það var í gær...
Ó, fyrirgefðu mér
það segist eins og er
Ég særður er án þín
Ég sé ei sólina fyrir þér
og þrái ekkert hér
Heitar en að fá þig heim
og horfa í augu þín sem fyrr
(Björgvin Halldórsson)

01. maí 2007 klukkan 00:43
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir