Byrjuð að vinna!!
Jæja, þá er maður sko byrjaður á fullu.. þetta týpíska íslenska vinnusumar, þið skiljið!Ég er í verknámi á handlækningadeild spítalans á Akureyri núna og verð til 15. júní. Það er samt bara dagvaktir, þannig að ég nýti hvaða tækifæri sem ég get til að vinna mér inn pening (verknámið að sjálfsögðu gert pro bono..). Ég er byrjuð aðeins á slysadeildinni, tók 3 tíma í gær og fyrradag og var svo bara skellt á 12 tíma vakt í dag! Tek aðra svoleiðis á morgun, þannig að það er sko nóg að gera!
Ég er náttúrulega ennþá í aðlögun og er að fylgja annarri hjúkku, en í dag var svo brjálað að gera að ég bara varð að gjöra svo vel að taka á honum stóra mínum og gera fullt sjálf og viti menn, það bara gekk helvíti vel! Ég allavega labbaði brosandi út. Fannst þetta rosa gaman!
Ég fæ enga smá æfingu þarna í öllu þessu verklega, er á þessum 18 tímum sem ég hef unnið þarna nú þegar búin að taka nokkur hjartalínurit, taka nokkrar blóðprufur, setja upp nál, taka strok í sýklaræktun, taka á móti sjúklingum, búa um sár, gefa lyf, aðstoða lækna, gefa súrefni og síðast en ekki síst þrífa upp BÆÐI blóð og ælu! Geri aðrir betur!!:) hahaha! Læri mikið meira þarna heldur en í verknáminu!:)
Sé fram á nokkuð skemmtilegt sumar bara!
Svo eftir 15. júní, þegar verknámið er búið, þá fæ ég vonandi einhverjar aukavaktir á nýju og flottu Te og Kaffi. Mig klæjar nú pínu í puttana að fá að búa til kaffi! Mikið var gott að fá alvöru, gæðakaffi þegar ég kom heim til íslands. Ég var búin að gleyma því hvað við erum góðu vön! Meira að segja kaffið uppi á spítala er ekkert svo hræðilegt lengur! Ég fékk mér kaffi latte úr sjálfsala í 10/11 í Leifsstöð og meira að segja það var gott! (enda að sjálfsögðu sjálfsali frá Te og Kaffi!)
En ég er að fara á aðra tólf tíma vakt á morgun og ég má bara engan veginn vera þreytt í þessarri vinnu ef ég ætla að taka inn allt þetta sem ég á að læra þarna! Því verður þetta ansi viðburðalítið laugardagskvöld. Sit núna á Kaffi Amor og skrifa þetta, þar sem ég er ekki ennþá komin með netið heima. En aldrei þessu vant þá syrgi ég það nú ekkert að komast ekki á djammið, enda komst ég að því um hvítasunnuhelgina að djammið er frekar sorglegt hérna á Akureyri! Veit ekki hvort það hefur slappast svona rosalega meðan ég var í burtu eða hvort ég hafi bara verið orðin svona samdauna þessu og hafi ekki tekið eftir því! (vona að það fyrrnefnda sé rétt...). Þegar fólk fór að dansa við þýska þjóðlaga-jóðl-tónlist í teknóstíl, þá ofbauð mér nú bara og ég fór heim. Eða reyndar fór ég á Kaffi Karólínu og tók gott spjall við hana Dittu mína, fjarri ofurölvi Akureyringum með afvegaleiddan tónlistarsmekk! (og enn verri danshæfileika!)
Jæja, farin að sofa, fyrir klukkan tíu á laugardagskvöldi!
Góða nótt lömbin mín!
Gunnsa
02. júní 2007 klukkan 21:38
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
og takk fyrir kommentið snúlla.. :*
love u too!! :*:*