Jæja
Jæja, er ekki kominn tími á að segja einhverjar fréttir af mér hérna á Akureyri?Ég er búin að vera á fullu í vinnunni, var að vinna á slysó síðastliðna helgi, þegar voru bíladagar og tilheyrandi vitleysa hérna í bænum og endalaust mikið af vitleysingum að slasa sig! Því var gott að fá tveggja daga frí mánudag og þriðjudag og fá mömmu og pabba í heimsókn!
Ég eyddi fyrri parti mánudagsins í að taka upp úr seinustu töskunum (já, ekkert skrítið við það!!) og svo komu mamma og pabbi seinnipartinn. Þau komu með sænskum ættingjum okkar sem við fylgdum á gistiheimili út á Grenivík. Fórum svo og fengum okkur að borða og fórum svo að sofa.
Á þriðjudaginn þá fórum við á bæjarrölt, fórum á Te og Kaffi í hádeginu og keyrðum svo út á Hjalteyri þar sem við fengum okkur kaffi. Því næst fórum við á Árskógsströnd, þaðan sem við tókum ferjuna út í Hrísey. Þar fórum við í traktorstúr um eyjuna og fræddumst aðeins um sögu hennar og menningu. Það var alveg rosa skemmtilegt og ég auglýsi hér með eftir fólki sem langar að fara með mér einhverntímann í sumar út í Hrísey eins og eina nótt til að tjalda, fara í gönguferðir og út að borða á þennan líka fína veitingastað sem þau eru með þarna!
Í dag fóru svo mamma og pabbi í Mývatnssveitina með sænska anganum af fjölskyldunni á meðan ég bara dúllaði mér eitthvað hérna á Akureyri og fór svo í vinnuna klukkan 3. Var í vinnunni til 11 og lærði meðal annars í kvöld að gera dorsal gipsspelku á úlnlið! Gerði hvorki meira né minna en þrjár svoleiðis í kvöld!!;) Eftir vinnu fór ég svo niður á Te og Kaffi og æfði mig á nýju kaffivélina þar. Það var verið að þjálfa nýja starfsfólkið og ég fann að mér veitti ekki af smávegis þjálfun, enda orðin ansi ryðguð eftir langa fjarveru frá kaffivélunum!
Á morgun ætlum við að finna okkur eitthvað skemmtilegt að gera þangað til ég fer í vinnuna klukkan þrjú. Kannski við skellum okkur bara í sund ef veðrið verður eins gott og það var í dag.. eða betra? Kemur í ljós!
Vonandi eigið þið yndislega sumardaga!!:)
Knús og kossar
Gunnsa
21. júní 2007 klukkan 00:32
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
Gott að heyra að þér líður vel að vera komin aftur til Akureyrarinnar og vá!! hvað ég væri til í að kíkja í svona Hríseyjar-túr með þér!! :) Hljómar ekkert smá gaman! ;)
En vona að þú haldir áfram að hafa það gott snúlla
*kys&RISAknús* frá Danmörkunni