Stíflur og stuð!
Já, nú er ekki fjör á mínum bæ... Eitthvað sameiginlegt niðurfall fyrir íbúðina mína var stíflað, með þeim afleiðingum að það búbblaði alltaf upp úr sturtunni ef ég lét renna í eldhúsvaskinn og rennur svo djöfullega hægt niður úr sturtunni að mér er guðslifandi ómögulegt að fara í sturtur sem vara lengur en 5 mínútur. Ja, nema ég vilji láta fljóta útúr henni og yfir allt baðherbergisgólfið (sem svosem átti sér alveg stað um helgina, samt EKKI mér að kenna, heldur ofur-dofinni stelpu sem "tók ekkert eftir því að það var komið vatn upp Á KÁLFA"... nefni engin nöfn hérna.. hahaha)En ég allavega tók mig til og hringdi í kalla til að losa stífluna. Ég hringdi kl. 8 í morgun þegar ég var nýkomin af næturvakt. Þeir sögðust myndu hringja í mig einhvern tímann eftir hádegið. Fínt fínt hugsa ég og fer og legg mig. Korteri eftir að ég sofna... eða um klukkan 10, hringja þeir og segjast vera á leiðinni! Úff, ég þakkaði Guði fyrir að hafa þrifið allt hátt og lágt hérna í gær! Fór samt pínu hjá mér þegar þeir sögðust þurfa að færa ísskápinn.. hef ekki ennþá þorað að fara inn á bað og kíkja hvað þeir hafa getað grafið upp undir honum! En er það ekki bara mannlegt.. þrífur einhver ALLTAF undir ísskápnum hjá sér, ég bara spyr?!
En eitthvað gengur þeim nú illa að losa þessa stíflu, því núna eru þeir búnir að basla við það í rúman einn og hálfan tíma og ég ekki ennþá farin að sofa eftir næturvaktina og rétt að renna í hádegi! Er að spá í að skella mér kannski bara í hádegismat með henni Berglindi minni og skilja kallana eftir í stífluveseninu!
En annars er það gaman af mér að frétta að ég varð þess heiðurs aðnjótandi að vera með henni Evu Dögg minni frá miðvikudegi til sunnudags og lofa að setja inn myndir af þessarri snilldarhelgi um leið og tækifæri gefst.
En núna eru pípararnir búnir og sögðu mér að þetta bara væri ekki að ganga.. og það yrði að rífa bara sturtuna í burtu og grafa þarna ofaní og allt væri bara stappstútfullt af skít og drullu... WASN´T ME!! En ég ætla að hringja í eigendur þessarar íbúðar áður en ég fer að panta lið í svoleiðis framkvæmdir.. haha..
En núna, klukkan hálf eitt ætla ég loksins að fara að leggja mig eftir næturvaktina. Takk fyrir mig og góða nótt/dag..eitthvað...
24. júlí 2007 klukkan 12:15
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir