Gleðilegan fyrsta!!
Þrátt fyrir annars skítalág laun hjúkrunarfræðinga, ætla ég að leyfa mér að þakka spítalanum fyrir að borga mér hvorki meira né minna en 31.000 krónur í álag ofan á launin mín fyrir að hafa unnið á 17. júní. Það kalla ég sko hæ hó og jibbý jei!Í tilefni þessa, fór ég í Strax og keypti mér ost ofan á ristaða brauðið mitt. Slíkan munað á maður alla jafna auðvitað ekki að kaupa nema í Bónus og það helst bara einu sinni í mánuði. Keypti mér meira að segja hálft brauð til að rista undir ostinn... og sykurskerta kókómjólk. Þetta gerist ekki betra.
Fjarstýringin af sjónvarpinu mínu er búin að vera týnd í viku. Ég hef hana grunaða um að fela sig undir rúmi. Mér er alveg sama. Þetta breytir engu. Ekki það að ég standi núna upp og skipti um stöð "handvirkt". Ónei, ég bara sleppi því að horfa á sjónvarpið! Og hana nú.. gæti ekki verið meira sama!
Svo vil ég líka þakka Trick Daddy og Ludacris fyrir að búa til lagið Sugar sem gladdi mig í morgunsárið. Njótið.... http://youtube.com/watch?v=8jCbZU6SsmY (þetta er einhver furðuleg teiknimyndaútgáfa af myndbandi við lagið.. en "alvöru" myndbandið er ft. Lil Kim og mér finnst sú útgáfa bara alls ekki nógu skemmtileg. Þó er það gott við hana að maður sér Cee-Lo Green sniglast í bakgrunninum. En ykkur er eflaust alveg sama um það.)
Þá er ég farin að sofa. Over and out klukkan 08:43, miðvikudaginn 1. ágúst. (já, ég var á næturvakt.. gáfnaljós!)
01. ágúst 2007 klukkan 08:44
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir