Saga fyrir svefninn

Vinkona mín var að hjálpa mér að pakka í dag... og þegar hún kallaði til mín af baðinu í dag og sagði "hvorn tannburstann áttu?" og ég svaraði "þennan fjólubláa... oj, þú mátt henda hinum"... þá óraði mig ekki fyrir því að ógeðslegi vibbatannburstinn sem var skilinn eftir hérna af fyrri leigjendum fyrir svona 5 mánuðum síðan og er búinn að standa inni á baði og rykfalla og baða sig í sýklaflóði væri...........

LÍKA FJÓLUBLÁR!!og jafnvel even more so heldur en minn

sem núna situr væntanlega úti í ruslagámi

og saknar mín



En ég á annars bestu vinkonur í heimi sem hjálpuðu mér óendanlega mikið í dag að pakka og flytja og færa og bera. Berglind og Ásta.. you are lifesavers! Og ég lofa að segja ENGUM hver henti tannburstanum mínum.. ég kaupi bara nýjan í fyrramálið!


Og innan fárra klukkustunda mun hún Ólöf mín yfirgefa klakann í tvo mánuði til að fara að elda ofan í liðið sem gistir hótel Legoland... Ég sendi hana af stað með nesti og nýja skó í pakka (eða svona næstumþví), og knús og kossa í poka. Gangi þér rosa vel ástin mín og ég veit að þú munt sparka í danska rassa þarna! (a.k.a. kick some danish asssssssssss!)
LOVJÚ

15. ágúst 2007 klukkan 02:31
Gunnhildur Árnadóttir
hildur lind skrifar ...
heheh alltaf jafn gaman að lesa bloggið þitt sæta mín!! ;) og góða skemmtun í Ungverjalandi, það verður örugglega geggjað!! :)
en ein spurning.. ert þú búin að fá einhvern póst um að myphotoalbum sé að hætta og að þú þurfir að flytja allar myndirnar þínar yfir á snapfish????
veit ekki hvort það er eitthvað til í þessu eða hvort það sé bara verið að bullsh**ta í manni.. :/
eníveis...knús og kossar til þín sæta mín!! :*
16. ágúst 2007 klukkan 16:48

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...