HÖNGARÍ END OSTRÍA HÍR Ć KOMM!!

jæja, þá er ég komin í flugstöð Leifs Eiríkssonar, bíð eftir fluginu mínu. Ég flýg fyrst til Köben, þar sem ég stoppa í 8 tíma og ætla mér nú aðeins að skreppa á Ströget og kannski kíkja í nokkrar sjoppur.. hver veit? Svo liggur leiðin til Budapest þar sem ég lendi klukkan 10 í kvöld. Þar tekur Levente, vinur minn úr skólanum í Chicago á móti mér og ég gisti hjá honum í 3 nætur. Svo tek ég bílaleigubíl á föstudaginn og keyri til Graz í Austurríki og heimsæki hann Stefan minn og ég get ekki beðið!

Ef þið munið ekki, þá var það Stefan sem fór með mér í spring break road trippið úti! Jeijjj!!
En eftir helgi hjá Stefan, keyri ég til hans pabba míns sem er í sumarhúsinu okkar as we speak. Þar mun ég slappa af í nokkra daga, áður en ég kem heim 1. september!
Hlakka til að sjá ykkur öll aftur en mun vonandi lítið sakna ykkar í þessa tíu daga.. hahaha...
Afslöppun, at last!!;)
21. ágúst 2007 klukkan 06:01
Gunnhildur Árnadóttir

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...