Budapest, HU
Jæja, þá er maður kominn á leiðarenda. Eða allavega fyrsta leiðarenda.. sem er þá væntanlega ekki endi, heldur bara svona "pitstop".... hehe.Ég fór samt ekkert frá Köben fyrr en ég var búin að finna mér skó, nei auðvitað ekki! Fann mér þessi dýrindis leðurstígvél, seinasta parið, akkúrat í minni stærð á aðeins 199 DKK.. kjarakaup!
Ég var samt eitthvað svo stressuð að ég flýtti mér ekki nógu hægt í köben og var komin allltof snemma aftur upp á Kastrup... þurfti að bíða heillengi eftir vélinni. En það var í gúddí, ég bara fékk mér sushi og hvítvínsglas og "tjillaði"...
Á flugvellinum í Budapest tók Levente á móti mér, brosandi sem endranær og fór með mig heim til sín. Hann býr með mömmu sinni og systur í lítilli íbúð á besta stað í borginni, maður sér niður að Margit Sziget og yfir alla Gellért hæðina og á veturnar sést víst í parlamentið.. en núna er of mikið af laufum á trjánum. Við erum víst í næstu götu við herra prime minister of hungary hvorki meira né minna. En ungverjar eru yndislegt fólk. Systir hans Levente gekk úr rúmi fyrir mig og sefur núna (og ég með samviskubit) uppi í rúmi hjá mömmu sinni, en rúmið hennar er í stofunni. Eldhúsið er þar sem svalirnar eru, var áður í herberginu hans Levente, en mamma hans vildi endilega að hann fengi sitt eigið herbergi, þannig að hún lét flytja eldhúsið og fórnaði svölunum. Svona er nægjusemi ungverjanna... held að ýmsir íslendingar væru nú löngu fluttir í aðra íbúð.. haha! En ég ætla að fara að lúlla mér núna.. læt ykkur vita meira um mig á morgun. Knús og kossar
Og nú bölva ég þeim sem kom þeirri hugmynd í hausinn á mér að downloada Grey´s anatomy áður en ég færi út svo ég gæti horft í vélinni... jújú, frábær hugmynd, en núna er ég SJÚK í þessa þætti! Þeir eru ÆÐI!!!!!!!úfff!! Dr. McDreamy... úfffffffffffffffffff!
Góða nótt, eða... jó éjsakát!
21. ágúst 2007 klukkan 22:09
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
Veistu Grey´s er bara snilld.. var búin að segja þér það, hihi. Hlakka til að heyra fleiri sögur af útlandinu :D