Engar móskítóflugur? Nei, EINMITT!!
í gærkvöldi var ég að segja Levente og systur hans hörmungarsögur af mér og samskiptum mínum við moskítóflugur í gegnum tíðina. Ekki fallegt. Og þau sögðu bæði að ég væri nú heppin þetta sumarið því það væru bara örfáar moskítóflugur í sumar, eiginlega engar.Í stuttu máli, þá eru þessar örfáu flugur væntanlega ALLAR búnar að finna mig og gæða sér á mér... ´
á báðum fótum
þrisvar á hægri hendinni
og jafnvel framan á vinstri löngutöng!! Finn fyrir því í hvert skipti sem ég pikka á tölvuna!! djísus...
Hafa þær engin takmörk?
22. ágúst 2007 klukkan 17:44
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir