Nei, hćttu nú alveg!!
... Engin takmörk! Þær hafa bitið mig UNDIR tána!! Nú er nóg komið, ég segi þessum helvítum stríð á hendur!!
Annars er ég búin að eiga yndislegan dag. Svaf alveg út. Fékk frábæran ungverskan mat í hádegismat, grizgáluska súpu og rizibizi, ásamt steiktu svínakjöti, tartár sósu og uborka sálatot!! Nammi nammi nammi!
Svo fórum ég og Levente á stúfana. Fórum upp í Buda vár, sem er kastalahverfið á Budahæðinni. Þar fórum við í Matyás témplom sem er fallegasta kirkja í heimigeimi! Þar sáum við líka hauskúpuna af eiginkonu föður hans Matyásar, sem ég veit svosem ekki hvað er að gera þarna.
En þarna er hún í öllu sínu veldi, ef þið hafið áhuga:

Svo fórum við og skoðuðum útsýnið, sem var MAGNAÐ eins og endranær


BJÚTÍFÚL!!!!!!
En svo skoðuðum við okkur meira um á kastalasvæðinu og ég reyndi að vera listræn í mér og tók fullt af svarthvítum myndum...




þið afsakið að ég hætti að nenna að minnka myndirnar.. það er svo mikið vesen þannig að þær haldi áfram að vera í réttum hlutföllum........
En svo fórum við labbandi yfir The Chain Bridge og niður í bæ. Settumst þar niður á kaffihús og hvíldum lúin bein. Svo fórum við heim og fengum okkur kvöldmat og svo kíktum við aðeins út eftir kvöldmat með systur hans, henni Eniko og fórum á Romkért, sem er æðislegur utandyrastaður sem ég hef ábyggilega sagt mörgum frá sem lesa þetta blogg.... Hef farið þangað oft áður og alltaf jafn æðislegt. Í kvöld var engin undantekning. Núna var ég að koma heim og er að fara að lúlla mér. Á morgun fer ég að hitta Matyás sem var með mér i skólanum í Debrecen. Hann ætlar að bjóða mér í hádegismát á Margit Sziget sem er eyja í Dónánni. Ég get ekki beðið.
Knús og kossar
Gunnsa
Gunnhildur Árnadóttir
Hafðu það gott í útlandi og borðaði yfir þig af góðum mat og dettu í það með góðu fólki
love jú og sakna þín