Góđa nótt eftir góđan dag!
Góða nótt! Ég er að fara að sofa núna eftir yndislegan dag. Svaf út, fór svo um hádegið aðeins á röltið niðri í bæ áður en ég fór og hitti Matyás sem var með mér í skólanum í Debrecen, í hádegismat á Margit eyju. Það var æði og gaman að hitta hann og við fengum æðislegan hádegismat. Svo fór ég og verslaði smá í West End City Center og svo fórum við heim. Hresstum okkur aðeins við og kíktum svo út með frænda hans Levente, á open-air pleis á margit sziget og svo fórum við á annan stað sem heitir Morrison´s. Það var mjög gaman.Á morgun mun ég svo keyra til Graz og hitta Stefan minn þar. Hlakka ekkert smá til!
Knús og kossar heim
Gunnsa
24. ágúst 2007 klukkan 00:10
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir