GRAZ, Austria
Jæja, þá er ég komin heim til Stefans. Hingað komst ég í gærkvöldi eftir að hafa keyrt frá Budapest í gegnum ömurlegar vegaframkvæmdir, en komst þó klakklaust á leiðarenda. Stefan býr einn í geggjaðri íbúð og beið að sjálfsögðu með kaldan bjór í ísskápnum handa mér þegar ég kom.Ég var líka með smá glaðning handa honum og ætla að skella inn smá myndaseríu af því þegar Stefan smakkaði íslenskt brennivín!



Hahahaha hann var nú ekkert alltof hrifinn í fyrstu, en tók engu ad sídur nokkra sopa til vidbótar þegar lída tók á kvöldid!
En jæja, ég ætla að fara að vekja hann núna.. það er komið fram yfir hádegi og ég er löngu vöknuð, believe it or not og búin að fara í sturtu og þurrka hárið og borða morgunmat og allt. Já, OG blogga!
Eigið þið yndislegan dag.. ég veit það á eftir að vera gaman hjá mér!
Knús og kossar,
Gunnsa
25. ágúst 2007 klukkan 12:10
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
Gott að heyra að allt gekk vel á ferðalaginu.
Skilaðu kveðju til Stefans.
Pabbi vill auðvitað vita af þér hverja mínútu, svo
hringdu í hann eða e-mailaðu. Gangi þér allt í haginn. Heyri frá þér þegar þú ert komin til pabba í Ungo.
Bless bless
mamma