Cserszegtomaj, HU
Jæja, þá er ég komin til hans pabba í sumarhúsið okkar.Algjört yndi. Veðrið alveg frábært og hér er gott að vera.
Það tók ekki nema 2 og hálfan tíma að keyra hingað frá Graz, þannig að það er alveg tilvalinn staður til að skreppa héðan og skoða. Mikið rosalega var ég hrifin af borginni. Ég fór í skoðunarferðir með Stefan út um alla borg í gær og þvílíka fegurðin.. Algjört æði!
Get ekki sett inn myndir í augnarblikinu, því að ég er ekki nettengd á fartölvunni, heldur bara á borðtölvu sem við erum með hérna og ég gleymdi því miður snúrunni sem tengir myndavélina í svoleiðis tölvur. Er orðin svo vön lúxusnum að geta bara stungið Sony minniskortinu beint inn í Sony fartölvuna mína og notið myndanna úr Sony myndavélinni minni... (ég ætti að fá borgað fyrir þessa auglýsingu hérna.. haha)
En ég lofa að hlaða inn myndum við tækifæri.
Núna taka við nokkrir dagar í pjúra afslöppun. Það verður yndislegt. Það var reynt að kalla mig út í vinnu í dag, það var ósköp gott að geta sagt með góðri samvisku "ég kemst ekki.. er í útlöndum":)
Knús og kossar úr sveitinni í ungverjalandi!
26. ágúst 2007 klukkan 19:42
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
gaman að þú sér svo na dugleg að blogga, þarf á því að halda svona einmanna í lególandi ..
love jú