Ein stutt....
Jæja.. kominn tími á smá blogg eða hvað? Ég hef samt ENGAN tíma, þannig að ég ætla rétt að punkta niður svona það helsta sem á daga mína hefur drifið upp á síðkastið!
*Verknám á vökudeild Landspítalans. Mjög gaman!
*Eyddi tveimur og hálfri viku í borginni og fór út að borða og fékk mér gott kaffi oftar en ég á að venjast!
*Eyddi quality time með fjölskyldu og vinum
*Keyrði norður og var mætt í vinnuna klukkutíma seinna.
*Vann alla helgina.. JEIJ
*Byrjuð í verknámi á gjörgæsludeild FSA, verð þar bara í viku, þannig að ég er mest bara að horfa á og fylgjast með.
*Næsta vika verður svo verknám á skurðdeild FSA sem felst í meira áhorfi og glápi..
*Er að renna á rassinn með að gera ritgerð í barnahjúkrun sem á að skilast næstkomandi mánudag. Nennir einhver að gefa mér vítamínsprautu svo ég drífi í þessu?
*Er að fara í stelpuafmæli til Völu vinkonu á föstudaginn. Það verður haldið í sumarbústað á Illugastöðum þar sem við munum gista og hafa það gott í heitapottinum og drekka mojitos og kjafta frameftir nóttu. Það verður gaman.
*Svo næstu helgi eftir það verður árshátíð hjá FSA. Mig langar. Er enn að bíða eftir svari við því hvort ég fæ frí í vinnunni eður ei. Spennandi það
*Er með hálfgerða "heimþrá" til Chicago.. sérstaklega svona þegar maður þarf að skafa af bílrúðunni sinni á morgnana í byrjun október! (Þar er semsagt 33 stiga hiti. Fékk að heyra það þegar ég talaði við Dino í símann í fyrradag!)
*Er annars bara hress og kát og líður vel í litla herberginu mínu í Skarðshlíðinni. Allir að kíkja í kaffi við tækifæri!
Knús og kossar.
Gunnsa
Gunnhildur Árnadóttir
Takk fyrir afmæliskveðjuna.. ;)
Gaman að lesa hvað þú ert að bralla þessa dagana og gangi þér vel með ritgerðina..
Ég er farin í 23°c (ekki þó 33°c) í Baaarcelooona!! ;D
kys&kram
Hildur