Oft var þörf....

Ojæja... Þegar mamma er farin að hafa áhyggjur að missa sambandið við mig og frétta aldrei neitt af mér og Alfa er farin að hóta að heimsækja mig aldrei framar, þá held ég að kominn sé tími á að henda smá fréttum hérna inn... Hvað finnst ykkur?

Ég hef bara ekki fundið fyrir þörf til að skrifa hérna inn í lengri tíma. Það gerist nefnilega bara þegar mér finnst eitthvað fréttnæmt hafa átt sér stað í mínu lífi. Þar af leiðandi getið þið giskað á hversu spennandi líf mitt hefur verið upp á síðkastið.. haha.. já... EINMITT!!

Það gengur bara allt sinn vanagang með skóla og vinnu og heimaverkefnum og kvíðaköstum á stöku stað yfir að vera ekki nógu dugleg. Einmitt í dag var ég heltekin af einu slíku og dreif mig upp í skóla til að reyna að rumpa af ritgerð sem ég á skila í Bráðahjúkrun. Hún fjallar um móttöku og hjúkrun brunasjúklinga. Svona kvíðaköst eru ágætis drifkraftur og mér miðar ágætlega áfram. Stefnan er að klára fyrir miðnætti annað kvöld.

Ég er reyndar að fara á 12 tíma næturvakt á slysó í nótt, en þar sem við erum 3 á vakt og ég hef fulla trú á siðprýði og slysavörnum Akureyringa, vona ég að ég nái að skrifa eitthvað í ritgerðinni í nótt. En það er bara svona "best case scenario". Maður þarf auðvitað að vera eins og skátarnir, við öllu viðbúinn.

Svo er ég að fara að byrja sem sjálfboðaliði hjá Rauða krossinum. Tók að mér að hjálpa til við laugardagsopnanir á Laut sem er athvarf fyrir geðfatlaða hér í bæ. Hlakka mjög til að byrja, en fyrsta vaktin verður laugardaginn 24. nóvember.

Þann 17. nóvember, JÁ, afmælisdaginn minn, eru ungir jafnaðarmann úr Reykjavík og nágrenni að fara að heiðra okkur með nærveru sinni og ætlum við í UJA af því tilefni að efna til óvissuferðar og einhverrar gleði um kvöldið. Mikil tilhlökkun til þess. En þar sem að ég er þar af leiðandi ekki að fara að halda afmælispartý, ákvað ég þess í stað að hafa frekar kökuboð á sunnudeginum þar sem fólk gæti kíkt í þynnkunni og fengið sér kökusneið og kaffi í annars illa upplagða maga...;) Allir sem þetta lesa eru hér með boðnir!

Annars er hæst á baugi hjá mér núna að reyna að skipuleggja heimsókn til Chicago í janúar. Já, ég bara get þetta ekki lengur. Er með "heimþrá" á hæsta stigi og langar meira en allt að kíkja á krakkana og borgina sem ég sakna svo sárt. Ef af ferðinni verður (sem ég er nú nokkuð viss um..), þá er lok janúar áætlað ferðatímabil. Hugsanlega verði gert stutt stopp hjá henni Joönnu í New York, hver veit!?! Þannig að þessarar ferðar er beðið með mikilli eftirvæntingu. Ég hringdi í Dino og nefndi þetta við hann. Hann skammaði mig fyrir að gera sig svona spenntan og sagði svo "see you in a month!". Ég hváði, en þá útskýrði hann fyrir mér að í raun væri bara einn mánuður þangað til í janúar, því í rauninni er einungis desember sem skilur að nóvember og janúar.. semsagt.. in a month! haha... Þá fattaði ég hvað tíminn líður ÓGEÐSLEGA hratt.. og það verða komin jól áður en maður veit af!

En fyrst.. PRÓF!! brrrrrrrrrr.. vil helst ekki hugsa um þennan ófögnuð! Og hvað þá lokaverkefnið... (sem verður þó OFUR skemmtilegt, því við erum búnar að ákveða það, ég og Ditta:)), já, eða útskriftina, sem nálgast óðfluga! Spurningin ægilega "hvað ætlarðu svo að gera þegar þú útskrifast?" heyrist æ oftar og ég bið hér með alla lesendur þessa bloggs að vinsamlegast HÆTTA AÐ SPURJA MIG AÐ ÞESSU!!!


ÉG VEIT ÞAÐ EKKKIIIIIIIII!!!!!!!!!!!!!!!


Takk og bless í bili! Vonandi þetta friðþægi þá sem hæst hafa kvartað undan bloggleysi mínu. Kannski ég ætti bara að hætta þessu? Hvað segið þið um það?
10. nóvember 2007 klukkan 17:22
Gunnhildur Árnadóttir
ólöf skrifar ...
neinei ekkert svona...bannað að hætta.
Gaman að þú sért að blogga þótt sjaldan sé :)
Ég er byrjuð að skipðuleggja afmælisgjöfina þína enda verð ég að senda hana til útlanda þaddna til akureyris...ekki það aupveldasta í heimi.
En annars bara takk og bless

:)
11. nóvember 2007 klukkan 00:27
sunna :-) skrifar ...
Aaaahhh.... takk fyrir að blogga - reddaði vinnudeginum algjörlega :-)
Lovja :-*
11. nóvember 2007 klukkan 15:58
EKKI HÆTTA! tá tala ég aldrei vid tig aftur
19. nóvember 2007 klukkan 14:25
Berglind B skrifar ...
Jæja kona... svona mikið að gera :o) haha
30. nóvember 2007 klukkan 19:50
ólöf skrifar ...
farðu að blogga....og ekkert bull um að vera að læra...ert nokkuð dugleg þessa dagana að hringja í fólk og svona til að þurfa ekki að lesa svo slepptu einu símtali og bloggaðu :)
Gott plan ;)
07. desember 2007 klukkan 23:20

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...