gleði gleði gleði, gleði líf mitt er....
Sit núna með henni Dittu minni í þessarri líka frábæru læri-aðstöðu sem er búið að útbúa í kjallaranum á Pennanum í Hafnarstræti. Hér er allt til alls. Þægilegir stólar, þráðlaust internet, allar skólabækur sem kenndar eru í Háskólanum, innstungur, skjávarpi og síðast en ekki síst: Te og Kaffi á efri hæðinni! Þetta er auðvitað ekkert nema pjúra lúxus. Hérna sitjum við svo og brainstormum og skrifum skemmtilegasta lokaverkefni sem skrifað hefur verið við heilbrigðisdeild Háskólans á Akureyri fyrr og síðar!! Lýg engu um það... held ég!! :)Það er svo ýmislegt spennandi í farvatninu sem ég segi ykkur kannski frá síðar, en það er eitthvað sem hefur með það að gera hvað ég geri í framtíðinni... segi ekki meir;) Múahahahaha.....
Ég er svo farin að hlakka til Chicagoferðarinnar miklu með viðkomu í New York. Er farin að plana að kíkja á eins og eitt Broadway sjów með henni Joönnu og að hitta hann Matt sem kom í heimsókn hingað á Akureyri í haust. Svo er það bara Chicago sem er óráðin eins og svo margt í henni veröldinni en ég hef sko engar áhyggjur af því að sitja aðgerðalaus þar.. ónei! Það er svo margt hægt að gera og sjá og fólk að hitta að ég bara held frekar að maður hafi ekki nægan tíma til þess alls ef eitthvað er!
Svo kveð ég ykkur bara með sojalatte í hönd og segi..
Je t'aime mes dames et monsieurs!!
24. janúar 2008 klukkan 17:26
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir