Ein fyrir Auði!!

Þó það sé nú orðið ansi langt síðan ég lofaði henni Auði minni að henda eins og einni færslu hingað inn, baaaara fyrir hana, þá er það ekki fyrr en núna sem ég stend við það. Og ég biðst afsökunar á því!

Mér finnst ég svosem aldrei hafa neina ástæðu til að skrifa hingað inn, finnst alltaf allt bara ganga sinn vanagang... en það er ábyggilega ýmislegt fréttnæmt engu að síður, þó mér finnist ég alltaf vera búin að segja öllum allt...

Núna styttist í að ég og Ditta fáum endanlegt svar frá Hjálparstofnun Kirkjunnar. Við sóttum um að fara á þeirra vegum sem sjálfboðaliðar í 3-5 mánuði til Malaví. Við sóttum um að fara í september og ég vona heitt og innilega að það gangi upp. Því annars þarf ég að byrja að spá í hvað ég ætla að gera þegar ég verð stór :S

Svo er minna en vika í það að ég haldi til Bandaríkjanna. Flýg út til New York á sunnudaginn næsta, verð þar í 5 daga og fer þaðan til Chicago þar sem ég verð í 13 daga og verð svo aftur eina nótt í NY á leiðinni heim. Lendi á Íslandi aftur 29. mars. Get ekki beðið og hlakka svo til að hitta alla að þið getið ekki ímyndað ykkur það! Þetta verður æðislegt!!

Svo þegar ég kem heim þá tekur bara við lokaverkefnisvinna út í eitt þangað til 15. maí en þá er lokaskil á verkefninu. Svo kynnum við það 30. maí og útskriftin mín er svo 14. júní. Veit ekki hvort ég á að halda upp á útskriftina hér fyrir norðan eða bara í Reykjavík daginn eftir eða eitthvað svoleiðis.... hvað finnst ykkur?
Væri einhver til í að taka road-trip til Akureyrar til að koma í útskrifarveislu?!

En jæja... nóg af fréttum í bili...
Látiði mig svo endilega vita hvort það er einhver yfirhöfuð sem les þetta blogg með því að skilja eftir athugasemdir!!;)
03. mars 2008 klukkan 14:49
Gunnhildur Árnadóttir
Auður skrifar ...
Takk takk, hefur alltaf verið markmið út af fyrir sig að einhver tileinki nafni mínu bloggfærslu ;)
Hvað útskriftarpartýhöldum líður þá segi ég klárlega reykjarvíkurparty en það er nú bara út af því að ég er sjálf (vonandi) að útskrifast þann 14...þannig að RVK fær mitt atkvæði.
Kv. Auður :)
03. mars 2008 klukkan 19:50
Mummi skrifar ...
Ef ég hefði ekki hitt þig um daginn þá væri ég sannfærð um að þér hefði verið rænt af bókapúkunum.. þessum grænu.

Þarf að hitta á þig í dag til að henda í þig heilli tösku af prinsessudraumum og drottningarstælum.. :*

.. ég mæti galvösk í útskriftarveislu.. hvort sem mér verður boðið eða ekki! ;)
04. mars 2008 klukkan 12:07
alfa skrifar ...
Ég er Mummi.
04. mars 2008 klukkan 12:07
Sissú skrifar ...
hæ beib ... sorglet að vera ekki í bænum þegar þú kemum ... en ég kem til með að hugsa til þín af ströndinni á Dóminíska ...

LUV ... Sissú
04. mars 2008 klukkan 22:28
Ólöf skrifar ...
Ekki mummi heldur...

Ég hlakka til að fá þig um helgina. Lofa engu með djamm eða neitt, verð að fá að láta það ráðast. En þetta með útskriftina þína, þá verð ég ekki á landinu svo þú verður að fresta henni til júlí...er það nokkuð mál?
05. mars 2008 klukkan 13:11
Helga skrifar ...
ég kíkju reglulega hérna inn með von um að sjá nýja færslu, þannig að þá veistu það
síðan ertu alltaf velkomin í heimsókn að sækja safapressuna og skóna þína :D það væri nú gaman að fara að hitta þig :D
en ef ég sé þig ekkert áður en þú ferð út þá skemmtiru þér vonandi vel
bæó
05. mars 2008 klukkan 23:01
lísa skrifar ...
ohh þú ert svo dugleg elskan mín. ég dáist af þér. ef ég heyri ekki í þér fyrir júessendei þá vona að ég þú skemmtir þér koooongunglega! :) og vá hvað stafsetning mín er léleg, nenni ekki að stroka út, nennti frekar að skrifa allt þetta!! ohh heimska tík, ég sko!

love you :)
06. mars 2008 klukkan 16:40
hildur lind skrifar ...
hæ sæta mín!! :)
að sjálfsögðu les ég bloggið þitt, þú mátt ekki hætta því þá missir maður alltof mikið af þér... :(
ég bjóst nú ekki við að sjá nýja færslu frá þér þegar ég kíkti hérna inn...en vona bara að þú sért að hafa það sem allra best í USA og skemmtir þér konunglega!! ;)
kiss kiss
Hildur
13. mars 2008 klukkan 08:56
Berglind B skrifar ...
Fáum við að sjá blogg á meðan þú ert í úglandinu :) Ohh ég vona það.. það er svo kjánalegt að heyra ekkert í þér svona lengi :/ Vonandi ertu bara að skemmta þér svo vel að þú hafir engan tíma til að blogga eða hafa samband við fólkið hér... það er líka bara gott :) hehe
15. mars 2008 klukkan 08:12
Helga úr Breiðó skrifar ...
Hæ Gunnhildur.. var eitthvað að vafra á netinu (þar sem ég nennti ekki að læra undir geðhjúkrun) og lenti hér á síðunni þinni.. þetta er sko lítill heimur.. Ertu að útskrifast í vor? Ég var einmitt að á leiðinni til Malaví með 4 hjúkkum í núna í vor (með hjálparstofnun kirkjunnar) en svo komu veikindi upp í fjölskyldu einnar þannig við ákvaðum að fresta ferðinni um ár og förum næsta sumar.. Ertu búin að fá svar núna?

Jiiiii hvað það var nú gaman að spottast hingað inn..

Gangi þér vel skvís
Kveðja,
Helga

ps. endilega leyfðu mér að fylgjast með hvort þið farið eða ekki ... set netfangið mitt að ofan..
11. maí 2008 klukkan 22:36

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...