Jæja...
Æji.. af einhverri skyldurækni finnst mér eins og ég verði að henda inn einu bloggi hérnaEfast samt stórlega um að einhver eigi eftir að lesa þetta...
En ég er allavegana komin heim eftir æðislega ferð til Chicago og New York! Hafði það yndislegt í góðra vina hópi og náði að slappa vel af fyrir lokatörnina í skólanum.
Lífið mitt núna er afskaplega óspennandi og fá mjög litlu að segja. Það eina sem ég geri þessa dagana er að vinna og skrifa lokaverkefni. Það gengur bara helvíti vel hjá okkur og við stefnum að því að fyrsta útgáfa til yfirlestrar verði tilbúin 1. maí. Lokaskil eru svo 15. maí. Við kynnum svo verkefnið 30. maí og útskrifumst svo vonandi 14. júní!! Jeijj! Þá verður loksins þessarri fjögurra ára háskólagöngu minni lokið og ég komin með BS próf í hjúkrunarfræði. Gunnsa hjúkka!
Ég verð að vinna á slysó hérna fyrir norðan í sumar og í september höldum við Ditta svo til Malaví. Já, það er orðið "final" - við munum fara út og verða í sirka 3-5 mánuði. Kannski við tökum smá ferðalag eftir vinnutörnina og skoðum einhver framandi lönd. Hver veit. Heimkoma er svo áætluð í janúar/febrúar 2009. Þá tekur við hjá mér vonandi vinna einhversstaðar, hvort sem það verður í reykjavík eða einhversstaðar annarsstaðar. Haustið 2009 langar mig svo að fara út til Chicago og vinna og fara í mastersnám. En til þess að það gerist þarf ég að vinna óendanlega mikla pappírsvinnu og fara í heilmörg próf. Ég þarf að taka GRE próf, TOEFL próf og svo bandaríska NCLEX-RN hjúkkuprófið sem testar mann upp úr öllu námsefninu í hjúkrunarfræði! Það verður án efa svolítið tricky og ég held ég taki bara með mér bækur til að lesa fyrir það til Afríku.
En jæja... nú er komið nógu langt hlé frá lokaverkefnisskrifum... Verð að fara og vera dugleg!!
Endilega látið mig nú vita ef þið eruð að lesa þetta.. haha
Gunnsa næstum-hjúkka
13. apríl 2008 klukkan 17:34
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
ég las :)
ég er komin suður í borg óttans og læt fara vel um mig við skrifborðið hans pabba og reyni að skrifa smá í þessu verkefni mínu
eru einhverjar fréttir af kindinni minni?
gott að heyra að ykkur gengur vel með ykkar
fínt að sjá að skipulagið hefur ekkert riðlast til þannig að þú verðir á landinu í lok mai á næsta ári :D
endilega halltu síðan áfram að skrifa inn á bloggið þitt þó það sé bara stutt og af og til
:D ;)