föstudagur 30. maí

Föstudagurinn 30. maí er síðasti dagurinn sem ég þarf að labba inn í Háskólann á Akureyri!!!
Ég mun kynna lokaritgerðina okkar sem er búin að vera lengi í fæðingu og var skrifuð af mikilli ást og alúð!
Á morgun kveðjum við hana og kynnum fyrir kennurum og samnemendum.
Ég ætti að sjálfsögðu að vera sofandi núna og safna kröftum fyrir kynninguna, en get með engu móti sofnað núna... er bara að leika mér á nýju tölvunni minni sem ég var að kaupa í dag!!
Ójá!! Eftir að gamla tölvan mín gaf upp öndina fyrir viku síðan, hef ég verið að leita að hinni fullkomnu tölvu fyrir mig. Fann hana loksins og keypti í dag. Toshiba satellite 13 tommu tölva, lítil og nett og með öllu sem æðisleg tölva þarf að hafa. Ég er allavegana mjög sátt við þessi kaup!
Endilega hugsið til mín klukkan 3 í dag, því þá verð ég að standa fyrir framan fullan sal af fólki og kynna ritgerðina okkar, barnið okkar, afkvæmið..... Jööö minn eini!!
Úff....
Gangi mér vel...
Takk takk
Góða nótt!!
30. maí 2008 klukkan 00:36
Gunnhildur Árnadóttir
ólöf skrifar ...
til hammó með nýju tölvuna sætamúsin mín...ég er líka að skrifa þér hérna úr minni nýju tölvu hehe

annars hlakka ég meira en afi minn til að fá þig til mín ....tel niður bjórana :D
31. maí 2008 klukkan 23:44
Ása skrifar ...
TIL HAMINGJU með allt saman sæti HJÚKRUNARFRÆÐINGURINN MINN :D
05. júní 2008 klukkan 19:06
lisa skrifar ...
innilega til hamingju med tetta elskan min. tu ert svo dugleg. hlakka til ad hitta tig i haust og knuuuusa tig. kvedja fra dubai x x x
11. júní 2008 klukkan 15:34

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...