komnar á leiđarenda!!
Jæja!!! þá erum við komnar, eftir næstum 15 tíma ferðalag!! þetta gekk samt rosalega vel og Kenya Airways fá hæstu einkunn frá okkur báðum!! Góður matur og náðum báðar að sofa! Vorum samt heldur betur ringlaðar þegar við komum og maður er í smá menningarsjokki hérna. Þegar ég segi smá, þá meina ég ROSALEGU!! Húsin hérna eru mjög skrautleg og það er fólk ALLSSTAÐAR!! konur sem bera töskur og dót á höfðinu og börnin á bakinu og allir litlu krakkarnir hlaupa á eftir okkur og segja Azungu, azungu, sem þýðir hvítur maður og svo veifa þau okkur!!En allt fólkið hérna er alveg ótrúlega vingjarnlegt og allir vilja allt fyrir okkur gera og við erum með dræver sem á að keyra okkur hvert sem við viljum fara. Við báðum hann um að skutla okkur á skrifstofur Þróunarsamvinnustofnunar hérna í Lilongwe og þar hittum við þrjár íslenskar stelpur. Þær buðu okkur með í hádegismat og við sitjum núna á rosa fínum veitingastað og borðum hádegismat á meðan ég er einstaklega skemmtileg og bara blogga á meðan...
Ég ætla að sýna af mér smá kæti og vera með í samræðunum hérna.. . ég reyni að blogga aftur bráðlega!!
ást og kossar,
Gunnsa og Ditta
09. september 2008 klukkan 11:02
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir