ÚFF!!
Hahaha... Ég veit ekki alveg hvernig ég á að koma orðum að síðustu dögunum hérna... þetta verður eiginlega að vera meira í stikkorðaformi því við höfum takmarkaðan tíma á netinu hérna....en það sem við höfum gert síðustu daga:
*tónleikar með skemmtilegu fólki með vinsælustu hljómsveit Malaví, the black missionaries. Hittum fullt af fólki sem hafði verið vinir Fríðu, ástu og bjarnheiðar sem voru hérna fyrir 2 árum og tóku okkur opnum örmum. Stelpur, ef þið eruð að lesa: Yamikani og Duncan biðja kærlega að heilsa!!:D
*gerðum okkur tilbúnar í rafmagnsleysi
*kynntumst rosa góðu fólki og eigum núna fullt af vinum:)
*fórum út að borða með íslendingum frá þróunarsamvinnustofnun og fengum steik og rauðvín!!
*fórum í brúðkaup þar sem við vorum eina hvíta fólkið og þóttum mjög merkilegar og vorum meira að segja teknar upp á svið til að láta taka myndir af okkur og brúðhjónunum saman. Þegar veislustjórinn fór að bjóða fólki að taka mynd af sér með hvíta fólkinu (Azungu) fyrir 500 Kwacha (250 kr íslenskar), þá var okkur nú nóg boðið og fórum niður af sviðinu....
*Búnar að fá rosa mikið af góðum mat, þar á meðal Nsima sem er maísgrautur sem er aðalfæða Malawa.
*Fólkið hérna er yndislegt og hjálpsamt en ótrúlega óstundvíst.....
*Malavískur tími er mjög teygjanlegt hugtak og það gengur allt mjöööög hægt og við höfum þurft að bíða mikið mikið mikið hérna og lærum mjög mikla þolinmæði!! Góð reynsla...
*Förum líklega til Madisi, þar sem við verðum að vinna á miðvikudaginn. Fyrst átti það að vera á föstudaginn.. svo breyttist það í mánudag, svo þriðjudag og núna er stefnan sett á miðvikudag... sjáum til hvort það gengur upp!! kemur í ljós!!
Leyfum ykkur að heyra frá okkur bráðlega aftur. Er í þessum töluðu að reyna að hlaða inn myndum á facebook... ef það tekst þá hendi ég linknum hingað inn...
Ástarkveðjur frá Malaví!!
Gunnsa og Ditta
14. september 2008 klukkan 15:40
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir