fleiri myndir!! Vúhúúú!!!:)
Tókst að hlaða upp nokkrum fleiri myndum í þetta albúm frá því í gær, þannig að þið sem eruð búin að skoða, endilega kíkið aftur og athugið hvort eitthvað hafi bæst við':) http://www.new.facebook.com/album.php?aid=2025802&l=17d22&id=67601988Annars fínt að frétta, lífið gengur hægt fyrir sig hérna. Fáum vonandi fund með manni á eftir sem getur farið með okkur í verslunarleiðangur fyrir clinic-ið okkar. Heldur betur þörf á því. Ekki einu sinni til Panodil! Við rétt náðum að stoppa lækninn af áður en hann gaf 4 ára barni Voltaren og náðum í Panodil úr okkar eigin fórum!!:) En.. vonandi náum við í skottið á þessum manni í dag.
Annars er það helst að frétta að það bætist önnur hjúkka frá íslandi í hópinn á morgun, hún heitir Guðbjörg og var svo spennt fyrir að fara í svona stört og fékk bara að bætast í hópinn á síðustu stundu!! Ekki slæmt það!!:) Samt spurning hvernig það verður hjá okkur núna næstu daga áður en Mobile-clinic-ið byrjar, því heilsugæslan okkar er ansi róleg, kannski 5 sjúklingar á dag og finnst okkur Dittu nú ekki alveg nóg að gera fyrir okkur tvær þarna! En... hehe.. það reddast bara:) Svo í lok október förum við að fara í ferðir út á land og skoða börn í feeding-miðstöðvum og gefa þeim lyf og svona.. það verður án efa mjög lærdómsríkt. Svo er annað verkefni sem við förum kannski í sem er mat á næringar-status skólabarna í landinu, sem við skulum segja ykkur betur frá þegar við fáum meira ða heyra!:) Hlökkum mikið til að fara að gera eitthvað gagn.
Erum núna að bíða eftir bíl til að sækja okkur til að fara að finna þennan verslunarleiðangurs-mann. Vonandi verður hann á staðnum þegar við komum!!
Við erum í borginni núna vegna þess að um helgina var svokallað Church-assembly sem var fjörug samkoma allra kirkjanna frá ELCM í landinu. það var ýmislegt um að vera og hinar ýmsu svæðisskrifstofur kynntu þau verkefni sem þau eru að vinna að. Svo voru sýndir dansar og kórar sungu og það var voða fínt, nema að moskítóflugurnar elskuðu okkur þennan dag þrátt fyrir allar forvarnir og fengum við sitthvor nokkur bitin. Svo var ábyggilega hátt í 35 stiga hiti og allt fór þetta fram utandyra, svo það var vel heitt. Svo í gær var messa, sem okkur var skyldugt að mæta í, enda áttum við aftur að standa upp fyrir framan söfnuðinn og kynna okkur. Kirkjan var troðin og ég lofa ykkur því að það var ekki arða af súrefni þarna inni! Með hitann úti og allan þennan mannfjölda, þá breyttist kirkjan í heitan pyntingarklefa og bekkirnir sem við sátum á hættu að vera þægilegir eftir fyrsta klukkutímann. Svo fór þetta auðvitað allt fram á Chichewa, þannig að við skildum ekki bofs í bala. Og haldiði ekki að herlegheitin hafi staðið yfir í fimm klukkutíma, takk fyrir takk!!! Já, ekki einn, eins og við erum nú frekar vön heima, ekki tvo, ekki þrjá, heldur FIMM klukkutíma. Ég stakk mér nú aðeins út fyrir þegar mér fannst alveg vera fara að líða yfir mig, og þegar ég kom aftur inn í kirkjuna var það eins og að ganga á vegg, loftið þar inni var viðbjóðslegt. En eins og annað, þá tók þetta líka enda og eftir kirkjuna fórum við og fengum okkur að borða með Yamikani, fórum svo og hittum Duncan og keyptum miða á Lake of Stars:) Svo fórum við heim og tókum því rólega.
Ég hef ábyggilega borðað eitthvað gruggugt, því ég fékk pínulítið í magann á föstudag og laugardag og kastaði upp tvisvar og fékk ogguponsu hita. Þá náttúrulega urðu allir hérna hræddir um að ég væri komin með malaríu, þó ég þættist nú viss um annað og það var ekkert annað tekið í mál nema bruna með mig beint á eitthvað clinic í malaríu test. Better safe than sorry býst ég við, en auðvitað var ég ekkert með malaríu (enda á þessum rándýru lyfjum, þó það nú væri!) og þetta er allt að ganga yfir (eða... niður) núna. :) Er samt bara nokkuð hress. Erum hjá Ingu og Sólrúnu núna, Inga vinnur hjá þróunarsamvinnustofnun og Sólrún hjá sameinuðu þjóðunum og þær voru svo yndislegar að bjóða okkur að gista. Sólrún var þó svo óheppin að fá malaríu og liggur núna lasin heima og Inga fór ekki í vinnu í dag, þannig að við erum bara hérna í rólegheitunum og Ditta er að laga hádegismat. Hún er svo mikill snilldarkokkur.
Held ég láti þetta duga í bili, hlakka til að heyra frá ykkur og kannski hvað ykkur finnst um myndirnar?;) Endilega opnið þær og lesið textana undir þeim, það eru svona smá útskýringar af hverju þær eru.
Ástarkveðjur
Gunnsa
..og Ditta:)
29. september 2008 klukkan 10:39
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir