gengisvandamál!!

Jeminn eini.. væri einhver til í að redda krónunni snöggvast?
þetta er farið að verða svolítið bagalegt fyrir okkur hérna...
þegar við mættum hingað þá voru 10.000 kwachar sama og 6500 íslenskar.
fyrir þremur dögum var það 7700 krónur
fyrir tveimur dögum var það 8500 krónur
Í dag þorum við ekki að kíkja á heimabankann....
hahaha...

en annað í fréttum er að Guðbjörg er komin, þriðja hjúkkan og okkur líst sko heldur betur vel á hana. Erum eins og er í höfuðborginni að bíða eftir fari til Monkey Bay. Förum annað hvort með Stefáni Jóni Hafstein eða Glúmi Baldvins og verðum þar um helgina. Það er íslendingapartý.. kveðjupartý fyrir eina sem hefur verið að vinna fyrir þróunarsamvinnustofnun og er að fara heim. Þannig að það er allt að gerast hérna hjá okkur. vorum að vinna í heilsugæslunni í gær og svo förum við aftur í vinnuna í næstu viku og svo helgina eftir það förum við á tónlistarhátið við vatnið með vinum okkar. Hlökkum mikið til.

Það er búið að fresta mobile clinic verkefninu þangað til í byrjun nóvember.. þannig að lífið verður bara rólegheit með þrjá sjúklinga á dag þangað til. En við förum samt í skólabarna verkefnið sem ég nefndi í síðasta bloggi þann 26. október og verðum í viku. Það er mjög spennó.

En maturinn minn er kominn á borðið.. ég ætla að borða

Sakna ykkar og elska ykkur
03. október 2008 klukkan 12:01
Gunnhildur Árnadóttir
Eva Björk skrifar ...
Alltaf gaman að heyra frá ævintýrinu ykkar;0)
07. október 2008 klukkan 15:07
JK skrifar ...
Sæl elsku Gunnsa mín. Fróðlegt að lesa bloggið þitt, en krónan! hún er eins og jójó þessa dagana og verður eitthvað áfram svo fer þetta að lagast. Allt gott að frétta af okkur í miðju óveðursins sem gengur hér yfir ísl.efnahagslíf. Ég orðin ríkisstarfsmaður og alles ! Frétti af þér og ykkur.
Kveðja þín JK í Réttó !
08. október 2008 klukkan 22:42

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...