Fleiri fréttir!

Jæja.. enn og aftur erum við komnar í höfuðborgina!! Eigum að baki mjög áhugaverða og skemmtilega ferð til Monkey Bay með starfsfólki þróunarsamvinnustofnunar og svo um síðustu helgi fórum við á tónlistarhátið sem var haldin við vatnið og það var rosa gaman. Hversdagslífið okkar er annars ansi ófjölbreytt, bara vinna á heilsugæslunni á hverjum degi og skoða sirka þrjá til fimm sjúklinga á hverjum degi. Gengið rauk ennþá meira upp.. 10.000 kwachar fóru hæst upp í 12.300 íslenskar krónur en þetta virðist vera á einhverri niðurleið núna sem betur fer. Er að bögglast við að senda út annað fréttabréf með fullt af myndum en það er að ganga eitthvað hægt hérna, því netið er alveg glatað, en sjáum hvað setur!!! Knús og kossar, Gunnsa
14. október 2008 klukkan 15:45
Gunnhildur Árnadóttir
hildur lind skrifar ...
Hæ skvísan mín!! :)
Var að lesa nýjasta fréttabréfið frá ykkur. Æðislegt að lesa þetta og heyra hvað það gengur vel hjá ykkur. Maður kemst samt hálfpartinn í annan heim þegar maður reynir að ímynda sér aðstæðurnar hjá ykkur, get sko vel skilið að vandamálin hjá okkur í hinum vestræna heimi virki lítil miðað við það sem fólk má þola þarna.
En vona að allt haldi áfram að ganga vel og að þið hafið það sem allra best! :)

kys&knus frá NZ
14. október 2008 klukkan 19:41
ólöf skrifar ...
hæ ástin mín.
Takk fyrir geggjað spjall....ég sakna þín svo mikið að mig svíur í stóru tánna :(
Gott samt að geta talað við þig annað slagið hehe

Ég er að skrifa þér mail núna sem verður mikið massífara en það sem ég sendi um daginn.

Ást og hamingja í Afríku...og hjá mér líka..

love jú longtime

þín skotta
16. október 2008 klukkan 17:36
hæ ástarengill!!!
Gód hugmynd í sídasta fréttabréfi!!! Tid erud snillingar!! Hvernig hefurru tad og hvad er ad frétta??? ég vil heyra eikkad djúsí!!!!
elska tig!!!!!!!!!!!!
28. október 2008 klukkan 15:02

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...