Afmćlisveisla!

Jæja gott fólk... það er heldur betur kominn tími á að láta vita af sér! Við erum komnar heim úr mobile clinicinu og komnar aftur í rútínuna í Madisi. Allt komið í samt horf og við erum komnar á fullt í að skipuleggja leikvallar og fótboltavallarverkefnið. Allt komið á fullt með framlög að heiman og við erum komnar með gefins bolta sem verða sendir hingað og fótboltabúninga frá Val og við erum ótrúlega þakklátar öllum sem hafa lagt sitt að mörkum. Ennþá séns að leggja fram eitthvað.. hint hint;)
Svo á ég afmæli á morgun, þannig að ég hélt upp á það hérna í höfuðborginni í gærkvöldi. Fengum prívat herbergi á kínverskum veitingastað hérna, sirka 15 manns mættu og fengu sér að borða og drukkum bjór og sungum kínverskt karókí.. haha.. það var frekar fyndið. Svo fórum við á hálfgert pöbbarölt, kíktum á Chamelons og svo á Synergy og dönsuðum smá og fórum svo bara heim. Í dag er höfuðið frekar þungt og við þreyttar og nennum varla að sitja í tvo tíma í minibus með 19 öðrum til að komast heim.. haha.. en illu er víst best aflokið. Svo ætla ég að baka nokkrar kökur í kvöld og bjóða fólkinu heima í kökur og kaffi í eftirmiðdaginn á morgun. Það verður kósý vonandi. Önnur stemming heldur en kínakarókí!
Ég vaknaði í morgun með nikkelofnæmi, held ég hafi drukkið of mikið kaffi í gær og ég er eins og þvottabjörn um augun, rosa smart og hlakka mikið til að komast heim til að taka eins og eina ofnæmistöflu svo ég geti séð út um augun. Var sagt áðan að ég liti út eins og kínverji... gaman að því!
En jæja, læt þetta duga í bili, internettíminn að klárast!!
Knús og kossar frá Malavíkínverjanum!!
16. nóvember 2008 klukkan 12:16
Gunnhildur Árnadóttir
Eva Dögg skrifar ...
hehehe.... kíverskt karíokí og kínversk Gunnsa! Allt í stíl!!
Fólk gleymir stundum bloggi, hvar sem madur er í heiminum! tad eru allir of uppteknir á fésbók! glatad!
En gott ad tad var gaman elsku Gunnsan mín og mikid væri ég nú til í ad fara til tín í afmælisbod í afríku!!
19. nóvember 2008 klukkan 15:47

Skrifa athugasemd

Ađalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburđarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...