heimferð?!
Jæja... þá er Gunnsa alveg að verða geðveik á þessu aðgerðaleysi hérna.. það er ekkert búið að vera að gera fyrir okkur hérna síðustu vikur nema klíníkið okkar með þessa standart 5 sjúklinga á dag. Það sem við gerum fyrir þá er að setja lyfin sem læknirinn uppáskrifar í poka, rétta þeim og segja "get well soon". Svo er næsta mobile clinic ekki fyrr en í janúar og í það skiptið eigum við bara að gefa vítamín og verkjatöflur. Ég sé einfaldlega ekki tilgang í því að við förum með í tveggja vikna svaðilför til að gefa fárveikum börnum verkjatöflur sem gera ekkert annað en að fela einkenni alvarlegri sjúkdóma, eins og malaríu og verður þá bara til þess að foreldrarnir halda að börnunum sé batnað og draga að fara með þau á spítala!Og á meðan við sitjum hérna aðgerðarlausar, halda peningarnir mínir áfram að gufa upp af bankareikningnum mínum, því gengið á kwachanum gagnvart krónunni er orðið geðbilað.
Ég hef því íhugað vandlega að koma heim, jafnvel fyrir jól! Sé snjó í hillingum!:) Læt ykkur vita nánar með það hvaða ákvörðun ég tek. Held það sé bara gáfulegra að fara heim og vinna sér inn einhverja peninga svo maður geti ferðast meira seinna, þegar maður fær actually eitthvað að gera!!!
Jæja.. i'll keep you posted
Knús og kossar
Gunnsa
21. nóvember 2008 klukkan 16:08
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir

Hvernig sem fer... hlakka ég til ad mæta á ljósmyndasýninguna tína!! og drekka kampavín og borda afríska smárétti!!
love you