home sweet home!

jæja, þá er maður kominn heim í faðm fjölskyldunnar og það leggst bara rosa vel í mig. Ég er sest að í gömlu íbúðinni minni í kópavoginum og komin með vinnu á landspítalanum, blóðlækningadeild. Byrja 5. janúar. Það er ekki slæmt að vera kominn með vinnu þegar ráðningarbann ríkir á flestum stöðum og nær allar stöður mannaðar. Er á selfossi í þessum töluðu að fara að borða hangikjöt og uppstúf hjá mömmu. Nammi namm.
Langar svo á tónleika á nasa um helgina, en get ekki gert upp á milli föstudags- eða laugardagskvölds... snilldartónleikar báða dagana... Ef ykur langar með, endilega látið mig vita og hjálpið mér að velja!!:D
Er búin að vera á fullu síðan ég kom að hitta fólk og fara á staði,  ef ég hef ekki látið í mér heyra, þá bið ég ykkur afsökunar... en ég er ennþá með sama gamla númerið, 8697617, endilega látið í ykkur heyra!
Knús og kossar
Gunnsa
25. desember 2008 klukkan 16:11
Gunnhildur Árnadóttir
Eva skrifar ...
En gaman. Til hamingju með vinnuna. Endilega vertu í bandi við mig og þú ert sko alltaf velkomin í heimsókn í Árbæjinn;0)
26. desember 2008 klukkan 21:13

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...