10 dagar í dag!

Jæja.. þá hefst niðurtalningin fyrir alvöru....
TÍíÍÍíiÍuuuuuuuuuuuuuuuu... og ennþá styttra þar til ég fer frá Akureyrinni!
Á ennþá eftir að gera allt sem ég átti eftir að gera í gær... össs...
Svo er gaman að segja frá því að hálsbólga bankaði uppá hjá mér í nótt og olli því að ég þurfti að fara heim úr vinnunni í dag klukkan tíu, því ég var ekki að gera neitt gagn fyrir fimmaura. Fór heim og er búin að sofa í allan dag. Get varla kyngt munnvatni, hvað þá fleiru, og kvíði því stórlega að þurfa að gleypa risavöxnu sýklalyfjatöflurnar sem ég þarf að taka útaf aðgerðinni á morgun... Þær eiga ábyggilega eftir að festast hálfa leið í stokkbólgnum hálsinum mínum og kæfa mig! Cause of death: penicillin!
Og svona fyrst ég er í sjálfsvorkunargírnum get ég líka sagt ykkur hvað ég hlakka mikið til að fara í flug í fyrramálið með hellu fyrir eyrunum, bólgur í kinnholunum og sýkingu í hálsinum... maaaaaaaan it's gonna be fun!
En, eins og ég sagði í síðustu færslu: Þetta reddast!

Ég nota líka þessa sjálfsvorkun sem ástæðu til þess að gera ekki rassgat... ég verð náttúrulega að sofa og hvíla mig... pakka bara niður seinna... þetta reddast alltsaman er það ekki?!;) Uppáhaldssetningin mín núna! Takk Sissú;)

Annars hef ég svosem ekkert spennandi að segja. Held að dagarnir mínir tveir í Boston verði frekar skrítnir þar sem Rafi er á fullu að flytja til íslands þessi elska og mun væntanlega ekki hafa mikinn tíma fyrir mig... En Craig ætlar að koma frá Philadelphiu og mun væntanlega gera sitt til að hafa ofan af fyrir mér. Svo fékk systir mín flugið mitt til Boston, þannig að hún verður að flugfreyjast og þjónusta mig á leiðinni. Ekki slæmt það;)

Er annars bara farin að hlakka FREEEEEKAR mikið til að fara...
er að spá í að fara að gera eitthvað..
NÚNA..
..eftir smástund...:)

Over and out...
08. ágúst 2006 klukkan 23:58
Gunnhildur Árnadóttir
Berglind B skrifar ...
Ástin mín, loksins get ég kvitta' á þessa nýju síðu þína :D
Verður gaman að fylgjast með þér í útlandinu, en hérna hvenær kemuru til rvk? Vi þurfum að ræða smá saman svona 2 áður en þú yfirgefur landið :o) kosssar
09. ágúst 2006 klukkan 04:36
ólöf skrifar ...
Já..þessi flensa er EKKI málið :(
09. ágúst 2006 klukkan 04:52
hildur lind skrifar ...
Gangi þér vel í dag snúllumús!! Heyrðu svo í mér þegar þú kemur heim..
*knús*
09. ágúst 2006 klukkan 18:08

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...