FIMMMMMMM!!

Jæja krakkar!
Í dag eru fimm dagar þangað til ég fer út.. en bara ca. 24 tímar þangað til ég fer frá yndislegu Akureyri!! Og nei, ég er EKKI búin að pakka! lalalala... En hún Eva Dögg mín (Ólafsdóttir, ekki Rúnars), kom hérna í gær og bjargaði mér þokkalega frá því að snúast í hringi hérna á stofugólfinu. Ég hafði ekki hugmynd um hvað ég ætti að gera  næst, þar til hún kom og byrjaði að stjórna aðgerðum eins og harðstjóri.. þessi kassi fer bara þarna, svo förum við með þetta út, ég set þetta hérna, sækt þú bílinn, út með kassana, svo var hún byrjuð að ryksuga íbúðina á meðan ég bar kassana út í bíl!! Takk æðislega þú ert æði!!!:) Bjargaðir mér!

Bjargvætturinn minn í dag verður svo hún Hildur Lind (já, ég er ósjálfstæð og get ekki gert neitt ein...). Hún ætlar að koma og hjálpa mér að velja föt ofan í tösku(r). Svo á ég bara eftir að þrífa íbúðina hátt og lágt og þá ætti allt að vera orðið set.

En í kvöld er komið að kveðjustund! Ég, duglega húsmóðirin, ætlaði að vera rosa klár og elda kvöldmat ofan í liðið sem ég ætla að kveðja. Svo komst ég að því að þetta yrðu það margir að ég hreinlega NENNTI því ekki. Svo ég pantaði bara hópmatseðil á Strikinu í kvöld og vonast til að sjá sem flesta þar klukkan 7. Fengum flott tilboð og hver borgar fyrir sig.  Ef þú lest þetta, langar að koma og ég hef ekki hringt í þig: Endilega komdu!:) The more the merrier! Ég hef ekki náð í alla sem ég ætlaði að ná í, en vona nú að það verði ágætis mæting! Svo á ég bara að fara á næturvakt í nótt.. seinasta vaktin! Mæting klukkan 11! Mikið verður erfitt að kveðja alla!! :(

Jæja, best að koma sér aftur að því að pakka!! :(
Sjáumst í kvöld, eða í Reykjavík á morgun eða hinn!
13. ágúst 2006 klukkan 18:37
Gunnhildur Árnadóttir
Baddy skrifar ...
hæ skvís,
góða ferð til ammmeríku, þetta verður án efa algjört ævintýri. ef þú rekst á dr. Carter þá máttu skila kveðju frá mér og segja honum að við eigum allar eins stethoscope og hann víííí...
vil fylgjumst með þér hér á blogginu;)
kv baddy brotna!
13. ágúst 2006 klukkan 18:50
Berglind B skrifar ...
ohhh ég væri til í að koma með þér útað borða, en við gerum eitthvað saman í borginni áður en þú ferð :)
13. ágúst 2006 klukkan 23:03
ólöf skrifar ...
Ná ég bjóða þér út að borða??
Við kanski höfum svona kveðjustund niðrí djúpi fyrir þá sem búa í RVk ..?
14. ágúst 2006 klukkan 03:03
Hildur Þóris skrifar ...
Næ ég að hitta þig eitthvað í borginni áður en þú ferð??
knús og kossar Hildur.
14. ágúst 2006 klukkan 21:26

Skrifa athugasemd

Aðalvalmynd

Innskráningar kubbur

Auglýsing

Atburðarteljari

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...