three two one....
jæja krakkz...þá er maður kominn í borgina og búin að vera bissí krissí hverja einustu mínútu! Trúi varla að ég sé að eyða mínum precious time í að blogga hérna inn.. ætli maður sé ekki bara orðinn hooked.. haha..:)
Leiðin suður gekk bara vel... frágangurinn á íbúðinni og kveðjustundirnar urðu lengur en ég bjóst við. Lagði af stað "aðeins" 4 tímum seinna en stóð til. Svo þegar ég var að keyra inn Öxnadalinn, mætti ég löggubíl. Ekkert sem hann hafði á mig, því ég var á akkúrat 100 og ekki kílómetra hraðar. Svo ég keyrði örugg áfram. En nei, löggubíllinn snéri við og byrjaði að blikka ljósunum á mig! Ég hugsaði með mér að bíllinn fyrir framan mig hlyti að hafa verið að gera, þannig að ég hægi á mér og fer út í kant til að hleypa löggufólkinu fram úr. Helvítis bíllinn fer ekkert fram úr!! Þá ákvað ég að þeir hlytu að vera í einhverju ökuskírteinatékki, svo ég stoppa. Er þetta þá ekki bara Arna stjarna í vinnunni og fékk þá snilldarhugmynd að nota þessa aðferð til að kveðja mig!! Ég fór í hláturskast á staðnum og skammaði hana fyrir að vera svona mikill púki! Fólkið srem sá tvær stelpur knúsast úti á miðjum þjóðvegi 1, hefur án efa verið mjög hissa! Ég hló að Örnu alla leiðina upp á miðja Öxnadalsheiði!!
Um leið og ég kom til Reykjavíkur lá leiðin beint í hitting hjá stelpunum úr bekknum mínum í Kvennó. Mikið var gaman að hitta allar stelpurnar, því sumar hafði maður ekki séð síðan á útskrift, 2004!! Við höfðum það kósý yfir ostum, vínberjum, gosi og spjalli um hvað við værum að gera við lífin okkar! Þvílíkt ólíkar sögur sem við höfðum að segja! Þreytt Gunnsa lagðist upp í rúm á Kópavogsbrautinni um miðnætti og svaf þar til 11 í morgun! Dagurinn byrjaði með heimsókn til tannsa, sem tók saumana úr kjaftinum á mér. Gott að losna við þá, því einn saumurinn lafði niður og var að gera mig geðveika! Hann sagði að þetta liti vel út, þrátt fyrir að ég væri nú "óvenju bólgin". NO SHIT, SHERLOCK!!!!!:)
Svo hefur dagurinn farið í allskonar stúss... búðaráp, ömmuheimsókn, Kolluhitting, íslenskt-design-shopping, út að borða með Auði, Sunnu og Eyrúnu og akkúrat núna, hvítvínsdrykkju og rockstar gláp með Ólöfu, Hjalta og Hjöddu. Mjög kósý. Takk fyrir daginn allir!
Dagskrá morgundagsins er svo nær fullbókuð.. en enn eru örfá sæti laus, svo hafið samband sem fyrst ef þið viljið næla ykkur í dýrmætar Gunnsu-mínútur!!!:)
Sakna Akureyrar.. sérstaklega Hlyns (no offense á alla aðra.. hann er bara einfaldlega bestur!;)). Takk elskan fyrir að nenna að passa pottaplönturnar... ég treysti þér alveg! (þó aðrir hafi efasemdir..hehe). Það var líka erfitt að kveðja Kristjönu (sem gaf mér yndislega vettlinga, TAKK!) og að fara í garðinn, sem var næstseinasta stopp áður en ég hélt til Reykjavíkur. Mætti grátbólgin heim til Völu, Hólmars og Herra Æðislegs, sem ég því miður gat ekki knúsað neitt, sökum hálsbólgu. Ég knúsa hann bara vel og vandlega þegar ég kem heim (og hann orðinn rúmlega 10 mánaða!!! ARGHH). Þvílíkt fúl að missa af skírninni hans, en skötuhjúin lofuðu mér heitt og innilega að senda mér sms um leið og presturinn hefur ausið síðasta vatnsdropanum á höfuð þessa fallega barns.
Ég ætla að hætta að trufla krakkana við Beverly Hills gláp með tölvutakkglamri.. og fara kannski bara bráðum í háttinn. Busy dagur framundan.
Bestu kveðjur úr borginni! Elska ykkur öll, Akureyrarrotturnar mínar!!
16. ágúst 2006 klukkan 07:33
Gunnhildur Árnadóttir
Gunnhildur Árnadóttir
Þykir voða voða væntum þig ástin mín og góða ferð út :* þúsund kossar